„Að hafa nóg að gera, gerir mann skipulagðan“
Ástrós Skúladóttir er 19 ára námsmaður og útskrifaðist nýlega sem dúx frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Aðspurð segist Ástrós vera óþolinmóð en glöð manneskja og áhugasöm við hvað sem hún tekur sér fyrir hendur enda sést það vel á námsárangri hennar. 10 var einkunnin sem var allsráðandi á einkunnarskjali hennar og meðaleinkunnin var yfir 9,5. Lengst af grunnskólagöngunnar var Ástrós í Heiðarskóla en hann var ekki stofnaður fyrr en á hennar 3. skólaári svo hún hóf skólagönguna í Litla-Myllubakkaskóla. Skólanum var svo breytt í Myllubakkaskóla og stundaði hún þar nám í öðrum bekk. „Ég kunni mjög vel við mig í Heiðarskóla, þar var æðislegt fólk, bæði starfsfólk og nemendur. Við höfum alltaf haldið hópinn frá grunnskóla og erum enn mjög samþjappaður vinahópur.“ Henni þótti gaman af flestum greinunum en þó var stærðfræði í uppáhaldi. „Ég elska stærðfræði. Það er bara á einn veg, sama hvar þú ert í heiminum.“
Á leið til Kína
Ástrós var á fullu í körfubolta og stundaði íþróttina af kappi enda mikil keppnismanneskja en hætti eftir tímabilið í fyrra. Það sem er núna framundan hjá þessari glæsilegu stúlku er löng ferð til Shanghai í Kína. Þangað ætlar hún að fara ásamt Birki, kærasta sínum í janúar. „Við ákváðum að skella okkur áður en við færum í háskóla og ætlum að vera þar í 3 mánuði að upplifa kínverska menningu.“ Ástrós hefur ekki sótt um skóla þar sem hún ætlar að þreyta inntökupróf í læknisfræði.
Stefnir á heilaskurðlækningar
Um framtíðaráform sín segist Ástrós stefna á heilaskurðlækningar en væri einnig til í að vinna með dýrum t.d. í Afríku. Ástrós hefur staðið sig frábærlega í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur. Hver er lykillinn á bak við þessa velgengni þína? „Að hafa nóg að gera, gerir mann skipulagðan. Ég var með frábæran grunn frá Heiðarskóla og hjálpaði það mikið til. Mér gekk best þegar dagurinn var fullur af verkefnum. Eina önnina var ég með 25 einingar í töflu, spilaði körfubolta með stúlknaflokki, 1. deild og meistaraflokki og vann í bíóinu um helgar en þá gekk mér best í skólanum. Maður var ekkert að slóra og fór bara í verkin.“
Birkir, kærasti Ástrósar grét af stolti við athöfnina. „Hann var svo stoltur og réð ekki við sig en fjölskyldan hans er mjög tilfinningarík. Mér fannst þetta æðislegt,“ sagði Ástrós með bros á vör.
Texti - Siggi Jóns