HSS
HSS

Mannlíf

Að fremja leiklist!
Fimmtudagur 11. nóvember 2004 kl. 13:42

Að fremja leiklist!

Það er frumsýningarkvöld, klukkan er hálfátta.  Andrúmsloftið í leikhúsinu er magnþrungið, blandað angan af andlitsfarða, hárlakki og ryki.  Leikararnir standa á sviðinu og eru að hita sig upp fyrir sýninguna.  Eftir nokkrar vel valdar líkamsæfingar tökum við höndum saman og lokum augunum.  Við einbeitum okkur að sýningunni.  Allt er kyrrt.  Svið er myrkvað og ekkert heyrist nema andardráttur okkar.  Þarna, á þessu augnabliki erum við eitt.  Þetta er okkar sýning og brátt mun fólk streyma í salinn, heyrum skvaldrið í þeim sem þegar eru komnir fram í anddyri. 
Frumsýningarfiðringurinn lætur á sér kræla, við ætlum að leggjast á eitt um að fremja í kvöld svo góða leiklist að fólk muni ganga í burtu með bros á vör og góðar minningar.  Við tökum saman höndum og öskrum: ENJOY!!!  Það eru 20 mínútur í sýningu.  Við förum inn í búningsherbergi og bíðum.  Leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson kemur inn og óskar okkur góðs gengis.  Nú er ekki eftir neinu að bíða.  Ljósin koma upp, tónlistin hækkar og við erum farin af stað inn í töfraheim leikhússins.

Nú, er svo komið að 3 sýningar eru búnar og aðsóknin afpyrnu dræm svo ekki sé meira sagt.  Hvar eru bæjarbúar?  Afhverju eru þeir ekki að skila sér á sýningar?  Við hér í Keflavík eigum eitt glæsilegast áhugamannleikhús á landinu og þótt víðar væri leitað.  Innan veggja félagsins búa stórkostlegir hæfileikar sem springa út sem aldrei fyrr í Eftirlitsmanninum sem er á fjölunum hjá okkur um þessar mundir.  Leikritið fjallar um gerspillt bæjarfélag þar sem embættismennirnir eru rotnir af spillingu.  Dag einn fær póstmeistari bréf þess efnis að von sé á eftirlitsmanni sem kanna eigi allan embættisrekstur bæjarins.  Það verður uppi fótur og fit og þegar glaumgosi einn að nafni Ivan kemur í bæinn þá er hann tekinn í misgripum fyrir hinn rétta eftirlitsmann.  Atburðarásin einkennist af endalausum misskilningi sem verður bráðfyndinn í höndum leikara LK.  Þetta er bráðskemmtilegur farsi sem er staðfærður á skemmtilegan hátt af leikstjóranum honum Bergi Þór, sem hefur staðið eins og stytta við bak leikaranna allt æfingaferlið og á mikið hrós skilið fyrir góða vinnu og fagmannleg vinnubrögð.  Leikararnir standa sig eins og hetjur og fara margir á kostum í hlutverkum sínum.

Nú er svo komið að ákveðið hefur verið að lokasýning verði næsta sunnudag kl.20:00.  Sýnt er í Frumleikhúsinu í Keflavík, Vesturbraut 17.  Vona ég að Suðurnesjamenn finni hjá sér leikhúsþorstann og skelli sér á þessa frábæru sýningu sem svíkur engann.  Suðurnesjamenn hafa yfirleitt mætt vel á þær sýningar sem leikfélagið hefur verið með og vona ég að ég sjái sem allra flesta á sunnudaginn.  Nú fer hver að verða síðastur.  Fyrstir koma fyrstir fá.  Miðapantanir eru í síma 421-2540 e.kl.18 á sunnudaginn.  Hvet alla Suðurnesjamenn til að koma, sjá og sannfærast.

Rakel Brynjólfsdóttir
Félagi í LK.

Bílakjarninn
Bílakjarninn