Áætla annað leiðsögunámskeið hjá MSS
Laugardaginn 4. júní sl. voru 16 nemendur í staðbundnu leiðsögunámi útskrifaðir hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Námið hófst í febrúar 2004 og lauk í maí 2005. Námið var 192 kennslustundir að lengd og veitir 16 einingar. Í náminu var m.a. farið í jarðfræði, gróður- og dýralíf, ferðaþjónustu, vettvangsnám, leiðsögutækni og svæðalýsingar. Farnar voru fjölmargar ferðir um svæðið þar sem nemendur nutu fróðleiks bæði heimamanna og leiðsögumanna.
Útskriftin fór fram í húsnæði Miðstöðvarinnar að Skólavegi 1. Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður MSS sagði frá tildrögum námsins en einn aðalhvatinn fyrir því að koma náminu á var lélegt atvinnuástand sem ríkti á Suðurnesjum fyrir 2 árum. Þegar hafinn var undirbúningur við námið kom í ljós að það væri kostnaðarsamt og hófst þá vinna við að leita eftir styrkjum. Nokkrir aðilar styrktu námið og var þeim þakkað sérstaklega fyrir. Þessir aðilar voru atvinnuráð SSS, SBK, Sparisjóðurinn, Íslandsbanki, Hitaveitan og Starfsmenntaráð. Einnig voru nokkrir aðilar sem styrktu námið með kennslu s.s. Fræðasetrið í Sandgerði, starfsmenn Reykjanesbæjar, Garðs og Grindavíkur. Í máli Guðjónínu Sæmundsdóttur, forstöðumanns MSS, kom fram að áætlað væri að fara af stað með annað leiðsögunám í byrjun árs 2006. Því ættu allir sem hafa áhuga, að skrá sig hjá MSS sem fyrst. Staðbundið leiðsögunám hefur einungis einu sinni verið haldið á Suðurnesjum áður og eru um 20 ár síðan. Helga Ingimundardóttir, sem var ein af þeim sem útskrifuðust þá, sagðist í tilefni útskriftarinnar vera mjög glöð þar sem hún þyrfti ekki að vera eins einmana í þessu starfi hér eftir. Nú kæmu fleiri félagar í stéttina. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði m.a. að væntingar til hópsins væru miklar og að þau muni ýta enn frekar undir aukna ferðamennsku á svæðinu. Stefán Helgi Valsson, einn af kennurum námsins, sagði að mikið hefði verið rætt um það í náminu að Suðurnesin væri fallegasti staður á landinu. Hans hlutverk að kenna leiðsögutækni og tungumálanotkun en lærði hann ótrúlega margt um svæðið af nemendum. Hann heillaðist af sögu og náttúru Reykjaness og í dag væri hann sammála því að það væri eitt af fallegustu svæðunum á landinu og hlaut hann mikið lófaklapp viðstaddra fyrir þessi orð.
Að sögn Guðjónínu Sæmundsdóttur, er um að ræða mjög öflugan hóp leiðsögumanna sem var að útskrifast og er mikils að vænta frá þeim í framtíðinni. Eftir útskrift stofnuðu þau sjálfseignastofnunina sem ber nafnið Leiðsögumenn ses. Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að aukinni kynningu á svæðinu á meðal fagfólks í ferðaþjónustu, íbúa, almennings og ferðamanna. Efla jákvæða ímynd svæðisins sem ferðamannastaðar fyrir erlenda og innlenda ferðamenn. Miðla sögu svæðisins til íbúa, almennings og ferðamanna. Selja ferðir um Reykjanes með faglegri leiðsögn útskrifaðra leiðsögumanna. Ljóst er að þessi hópur mun fjölga ferðamönnum á svæðinu, sem leiðir til tekjuaukningar í ferðaþjónustu á Suðurnesjum.