Á móti sól á Sandgerðisdögum
Hljómsveitin Á móti sól leikur á stórdansleik í samkomuhúsinu í Sandgerði n.k. laugardagskvöld, en dansleikurinn er liður í Sandgerðisdögum sem er árleg bæjarhátíð Sandgerðinga og nærsveitunga. DJ. Atli hitar upp.
Forsala fer fram í Listatorgi og er miðaverð 2000 krónur.
Það er gaman að segja frá því að þessi dansleikur er sögulegur fyrir þær sakir að það var einmitt í samkomuhúsi Sandgerðinga sem hljómsveitin Á móti sól steig sín fyrstu skref á sveitaballamarkaðnum, í marsmánuði 1996. Þessu hyggst hljómsveitin fagna á alla mögulega vegu.
Fyrsta ballið er stór áfangi í sögu hverrar hljómsveitar og oft getur verið erfitt að komast að í hinum harða heimi sem skemmtanabransinn á Íslandi getur verið. Misjafnt er hvaða leiðir eru hljómsveitum færar þegar þær telja sig vera tilbúnar til að stíga fyrstu skrefin, og eins er misjafnt hvaða aðferðum hljómsveitir beita til að koma sér á framfæri. Í tilfelli hljómsveitarinnar Á móti sól var þeim bellibrögðum beitt að hringt var í ýmis vertshús víðsvegar um landið og þjónusta sveitarinnar boðin, með þeim formerkjum að um vel þekkta og reynda sveitaballasveit væri að ræða. Sem var náttúrlega helber lygi! Nokkrir bitu á agnið og fyrstur til þess var viðkunnanlegur vert í Sandgerði, sem réði hljómsveitina á ball í Samkomuhúsi Sandgerðinga. Á undan ballinu stóð hann fyrir tísku- og hárgreiðslusýningu og líklega var fyrst og fremst því að þakka að ballið var ágætlega sótt. Í það minnsta var ekki hægt að þakka vinsældum hljómsveitarinnar það, enda sveitin með öllu óþekkt og óreynd. Ballið gekk þó sæmilega, uppistaðan á efnisskránni voru bítlalög og aðrir slagarar úr söngbókum og nokkuð var um endurtekningar.
Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og um leið og hljómsveitin Á móti sól þakkar Sandgerðingum fyrir þeirra þátt í að ýta hljómsveitinni úr vör, lofa meðlimir sveitarinnar að standa sig betur á laugardaginn kemur en þeir gerðu fyrir 12 árum síðan! Hljómsveitin hlakkar reglulega til að skemmta sér með Sandgerðingum og nærsveitungum og mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að þetta ball verði einnig skrifað í sögubækurnar. Þó með öðrum og jákvæðari formerkjum.
Virðingarfyllst,
Hljómsveitin Á móti sól
Allar nánari upplýsingar á www.amotisol.blog.is