Á leið í nám í einum fremsta söngleikjaskóla heims
„Ég sótti um í þrjá háskóla í London og komst inn í þá alla. Ég þurfti því að velja á milli þeirra og valdi The Arts Educational eða ArtsEd eins og hann er oftast kallaður. Þaðan mun ég, ef allt gengur upp, útskrifast með BA í leiklist, söng og dansi,“ segir Aron Gauti Kristinsson. Aron hefur getið sér gott orð í söngleikjasenunni á Íslandi og heldur von bráðar til London í nám í listgreininni. Áður en hann heldur af landi brott ætlar hann að halda fjáröflunartónleika í Andrews theater, miðvikudagskvöldið 21. ágúst n.k. klukkan 19:30.
Aron var ekki gamall þegar hann smitaðist af listabakteríunni og má segja að mamma hans hafi verið ákveðinn örlagavaldur.
„Mamma var með, ásamt öðrum, leiklistar- og söngnámskeið í safnaðarheimilinu í Keflavíkurkirkju sem kallað var Skapandi starf. Ég var með í því og heillaðist strax. Síðan skráði ég mig í Danskompaní en eldri systir mín var í skólanum og hafði hún áhrif á ákvörðun mína og síðan má segja að ekki hafi verið aftur snúið. Ég tók m.a. leiklist sem val í Danskompaní og svo lá leið mín í Verzló og þar tók ég þátt í mörgum uppfærslum. Ég hef verið með annan fótinn í Danskompaní allan tímann meðfram námi. Einnig er ég búinn að kenna leiklist, dans og söng þar svo það má segja að ég sé búinn að vera á kafi í þessu undanfarin ár og þetta nám í London er því kannski rökrétt framhald hjá mér.“
Þegar Aron var á þriðja ári í Verzló tók hann ásamt öðrum úr Danskompaní, þátt í heimsmeistaramótinu í dansi, Dance World Cup en þetta er næst stærsta íþróttamót í heimi og einungis Ólympíuleikarnir eru með fleiri þátttakendur.
„Þessi keppni, Dance World Cup, er risastór og það var mjög gaman að taka þátt og sömuleiðis var þetta frábær reynsla. Við tókum þátt í forkeppni í febrúar og komumst áfram og úrslitakeppnin var svo í Braga í Portúgal. Okkur gekk ótrúlega vel, tókum nokkur gull og við systkinin fjögur urðum heimsmeistarar með liðinu okkar í söng og dansi. Minn styrkur liggur í söngleikjaatriðum og ég tók dúett með litlu systur minni og tók einnig þátt í stærri hópatriðum með báðum systrum mínum og eldri systir okkar samdi atriðin svo þetta var sannkallað fjölskylduverkefni má segja. Það er keppt í mörgum aldursflokkum og mörg af stigahæstu atriðunum komast á svokallað galakvöld og keppa þar á móti hvort öðru og okkur tókst líka að vinna þar þrenn verðlaun. Við mættum svo aftur í ár til Prag í Tékklandi vitandi að erfitt yrði að toppa árið á undan en þetta gekk frábærlega og við í Danskompaní náðum m.a. að vinna átta gullverðlaun, nokkur silfur og brons og aftur þrenn galaverðlaun sem er ótrúlegur árangur og sérstaklega ef mið er tekið af hinni margumtöluðu höfðatölu,“ segir Aron.
„Ég ákvað að velja The Arts Educational eða ArtsEd eins og hann er jafnan kallaður en hann er talinn einn af þeim fremstu á sviði söngleikjanáms í heimi. Ég stefni á að útskrifast með BA-gráðu í leiklist, söng og dansi og draumurinn er að hasla mér völl á leiksviði í London“
Íslenska leikhússenan
Aron hefur fengið tækifæri í stóru íslensku leikhúsunum og tók nýverið þátt í uppfærslu á söngleiknum Frost, sem er íslenska útgáfan af hinum geysivinsæla söngleik, Frozen. Hann fékk hjálp góðra manna þegar hann ákvað að sækja um í söngleikjanámi í London.
„Það var frábært tækifæri að komast inn í Þjóðleikhúsið, að fá að æfa með öllum fyrirmyndunum mínum þar og sýna svo með þeim aftur og aftur. Ég tók líka þátt í Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu árið 2020 sem var álíka ævintýri. Þetta var frábær reynsla sem ég fékk þarna og á meðan ég var að æfa fyrir Frost ákvað ég að fara til London í prufur fyrir þrjá háskóla sem mér leist vel á og fékk góða aðstoð frá kennurum og vinnufélögum sem allir eru reyndir leikarar, söngvarar og dansarar. Þau hjálpuðu mér að undirbúa mig sem best og greinilega var undirbúningurinn góður því ég fékk inngöngu í alla þrjá skólana. Þetta kom mér skemmtilega á óvart því þessir krakkar úti eru sérstaklega góðir dansarar en greinilega hef ég eitthvað fram að færa líka. Ég ákvað að velja The Arts Educational eða ArtsEd eins og hann er jafnan kallaður en hann er talinn einn af þeim fremstu á sviði söngleikjanáms í heimi. Ég stefni á að útskrifast með BA-gráðu í leiklist, söng og dansi og draumurinn er að hasla mér völl á leiksviði í London. Maður verður að setja markið hátt en ég er líka mjög spenntur að starfa í íslensku leikhúsi.“
Fjáröflunartónleikar
Námið sem Aron er á leið í er dýrt og því ákvað hann að stökkva á hugmynd vina sinna og efna til fjáröflunartónleika sem haldnir verða í Andrews Theater á Ásbrú miðvikudagskvöldið 21. ágúst kl. 19:30.
„Ég held að mér sé óhætt að segja að ég sé að skipuleggja þvílíkt þrumushow. Það kom aldrei neitt annað til greina en að halda þessa tónleika í Andrews Theater. Þar steig ég mín fyrstu spor með Danskompaní, á þaðan margar góðar minningar og mér þykir afskaplega vænt um þetta leikhús. Það munu margir gestasöngvarar koma fram með mér, bæði vinir mínir sem ég hef verið að leika með og atvinnuleikarar og söngvarar úr leikhúsunum. À meðal gesta eru Bjarni Snæbjörnsson úr Þjóðleikhúsinu og Vala Kristín Eiríksdóttir úr Borgar- og Þjóðleikhúsinu en hún var t.d. að leika Önnu í Frost. Viktoría Sigurðardóttir kemur líka en hún hefur leikið í mörgum söngleikjum sem hafa verið settir upp á Íslandi á undanförnum árum. Ég er mjög ánægður með þetta fólk sem ég hef fengið með mér og lofa frábærum tónleikum. Ég verð í átta atriðum og m.a. mun ég taka siguratriðin frá heimsmeistaramótinu með vinum mínum úr DansKompaní en fyrir utan kynni ég hin atriðin og blanda geði við áhorfendurna. Ég hlakka mikið til, er svo spenntur að mig kitlar í lófana og vonast auðvitað til að sjá sem flesta mæta og eiga með mér þessa kvöldstund. Ég lofa frábærri sýningu,“ sagði Aron Gauti að lokum.
Tónleikarnir bera heitið “Bless í bili” og er miðasala á tix.is.