Á HVAÐA AUGUM LÍTUR ÞÚ Á BARNAVERND?
Á undanförnum tveim árum hafa orðið töluverðar áherslubreytingar í vinnslu og meðferð barnaverndarmála hjá Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar. Lögð hefur verið áhersla á að gera barnaverndina jákvæða og eyða fordómum sem tengjast barnaverndarvinnu. Litið er svo á að barnavernd og barnaverndarmál séu öll þau mál þar sem börnum og fjölskyldum þeirra er veittur stuðningur í hvaða mynd sem hann er.Ekki er gerður greinarmunur á hvort vandinn er upprunninn hjá barninu sjálfu eða innan fjölskyldunnar.Upphaf þessara breyttu áherslna má rekja til neikvæðs viðhorfs sem starfsfólk mætti hjá almenningi í garð barnaverndarstarfs og hræðslu hjá þeim sem þurftu á aðstoð barnaverndarstarfsmanna að halda.Sú umræða kom oft upp hjá fagfólki hvort mál væri orðið það slæmt að ástæða væri til að skrá það sem barnaverndarmál. Einnig gætti þessa viðhorfs hjá starfsmönnum barnaverndarnefndar. Starfsfólki fannst erfitt að vinna undir þessum kringumstæðum þar sem gætti bæði hræðslu og fordóma hjá fagfólki og hjá þjónustuþegum.Breytt viðhorfÍ kjölfar mikillar umræðu á stofnuninni tileinkaði starfsfólk sér breytt viðhorf til barnaverndarmála. Lögð var áhersla á að öll mál sem tengjast börnum og velferð þeirra séu barnaverndarmál og séu skráð sem slík og foreldrum gerð grein fyrir því.Einn þátturinn í því að gera barnaverndarstarfið opnara er að þegar barnaverndartilkynningar berast, er lögð áhersla á að ekki sé tilkynnt undir nafnleynd. Útskýrt er fyrir fólki að nafnleynd skapi oft mikla erfiðleika og mikil orka fari í að finna út hver tilkynnti. Það fresti því oft að tekið sé á máli barnsins sem tilkynnt er um þar sem tími og vinna fer í leit að tilkynnanda. Skilningur hefur verið á þessu sjónarmiði og fólk sér oft eftir umhugsun ekki þörf fyrir nafnleyndina.Áhersla á barnaverndarþáttÍ framhaldi af þessari áherslubreytingu var ákeðið að fara af stað með kynningu á þeirri þjónustu sem í boði er þar sem sérstök áhersla var lögð á barnaverndarþáttinn.Kynning hefur farið fram í staðarblöðum, og þeim stofnunum sem hafa afskipti af börnum. Auk þess var gefinn út bæklingur um stofnunina sem fór inn á hvert heimili í Reykjanesbæ. Einnig hafa starfsmenn barnaverndarnefndar verið virkir þátttakendur í útvistarátaki og foreldrum verið send bréf þar sem minnt er á útivistartímann.Nýlega var nafni Félagsmálastofnunar Reykjanesbæjar breytt í Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar og teljum við það stóran lið í þessari þróun. Starfsmenn Fjölskyldu- og félagsþjónustunnar hafa einnig verið þátttakendur í eða í forsvari fyrir samfélagsverkefnum s.l. ár og má þar nefna Marita - forvarnarverkefni sem fór af stað í fyrravetur og verður jafnvel aftur nú í vetur. Um er að ræða forvarnarverkefni gegn fíkniefnaneyslu sem kynnt er nemendum 9. og 10. bekkjar og foreldrum þeirra. Átakið var unnið í samvinnu við lögreglu og fólst í því að félagsmálastjóri var með kynningu á þjónustu stofnunarinnar á fundum með foreldrunum. Átak gegn einelti í Reykjanesbæ fór af stað s.l. vor að frumkvæði og undir forystu Fjölskyldu- og félagsþjónustunnar. Stofnuð var framkvæmdanefnd s.l. haust sem undirbjó vinnuráðstefnu sem haldin var í maí í Stapanum. Ráðstefnan var mjög vel sótt en þar var unnið í hópum að ákveðnum verkefnum og skilaði hver hópur af sér niðurstöðum sem unnið verður með áfram í vetur. Markmiðið með þeirri vinnu er að reyna að koma í veg fyrir einelti í Reykjanesbæ og finna leiðir til að sporna gegn því.„Börn eru líka fólk“ er námskeið á vegum Vímulausrar æsku, semFjölskylduþjónustan stóð fyrir s.l. en námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 6-15 ára sem hafa búið við ofvirkni, athyglisbrest, alkóhólisma, fíknisjúkdóma, geðræn vandamál, ofbeldi eða óöryggi af ýmsum toga. Foreldrar barnanna tóku einnig þátt í námskeiðinu.Starfið sýnilegraÞegar verkefni nefndar um öryggismál barna færðust til Barnaverndarnefndar við síðustu sveitarstjórnarkosningar varð töluverð breyting á starfi nefndarinnar. Hefur hér verið um afar jákvæða þróun að ræða þar semBarnaverndarnefnd tekur nú á þáttum sem tengjast almennri velferð barna s.s. slysagildrum í umhverfinu. Gátlistar hafa verið sendir út og ábendingar birst í staðarblöðum undir nafni barnaverndarnefndar um hjálmanotkun, gangbrautarljós o.fl.Með þessari breytingu er starf nefndarinnar orðið sýnilegra og tekur til allra barna í sveitarfélaginu.Við teljum að þessi áherslubreyting og aukin kynning á barnaverndarstarfinu hafi skilað sér mjög vel og viðhorfsbreyting hafi orðið bæði hjá fagfólki og almenningi. Fólk leitar sjálft í ríkara mæli eftir aðstoð fyrir börn sín og finnst ekkert athugavert við að málin séu skráð sem barnaverndarmál. Á árunum 1997-1998 varð 75% aukning skráðra barnaverndarmála hjá stofnuninni.ÁherslubreytingTöluverð áherslubreyting hefur einnig orðið varðandi vinnslu fósturmála, en 15 börn eru í varanlegu fóstri til 18 ára aldurs á vegumBarnaverndarnefndar og 3 í tímabundnu fóstri þ.e. fóstrað er til eins árs í senn. Í þeim málum þar sem fóstur er talið nauðsynlegt úrræði hefur áhersla færst yfir í að fóstra börn í góðri samvinnu við foreldra og áhersla lögð á að börnin haldi góðum tengslum við kynforeldra sína.Tilfinningatengsl við foreldraUmgengni er höfð mikil, t.d. er algengt að börnin fari einu sinni í mánuði yfir helgi til kynforeldra og einnig um jól, páska og sumarfrí. Á þetta einkum við þegar börn eru orðin stálpuð en við höfum þó notað þetta úrræði frá 8 ára aldri barna. Það sem við teljum að ávinnist með þessu fyrirkomulagi er að börnin njóta tilfinningatengsla við foreldra og aðra ættingja en alast samt sem áður upp í umhverfi sem hentar betur þeirra þroskaferli. Í sumum tilfellum hefur fóstur með þessum forsendum þróast upp úr sumardvöl barna í sveit.Þessi stefnubreyting í vinnslu og meðferð barnaverndarmála í Reykjanesbæ hefur haft þau áhrif að viðhorf almennings til barnaverndar er jákvæðara, þjónustan er aðgengilegri og nær til allra barna í sveitarfélaginu og hefur því mikið forvarnargildi. Starfsfólk er ánægðara í starfi þar sem það mætir velvilja í stað tortryggni áður. Barnaverndargrýlan er því greinilega á undanhaldi í Reykjanesbæ.BarnaverndarstarfsmennFjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar.