Á brautinni sýna í 88 húsinu
Unglingahópurinn Á brautinni, sem í eru krakkar úr 8.-10. bekk Njarðvíkur - og Myllubakkaskóla, stendur fyrir listasýningu í 88 húsinu í dag, Sumardaginn fyrsta, kl. 15.
Hópurinn hefur hist einu sinni í viku frá áramótum og gert ýmsa skemmtilega hluti saman til að styrkja sig og bæta vellíðan. Unglingarnir koma úr 8.-10. bekk
Undanfarnar vikur hafa þau unnið að verkum sem verða til sýnis í 88 húsinu og vonast til þess að sem flestir leggi leið sína til þeirra í sumarblíðunni.
Mynd: Hópurinn við undirbúning sýingarinnar