8. bekkur í Vogum lætur gott af sér leiða
– Halda markað og styrkja hjálparstarf
Áttundi bekkur í Stóru-Vogaskóla heldur markað næsta laugardag, 5. mars, frá klukkan 14:00 til 17:00. Markaðurinn verður haldinn í Tjarnarsal. Á markaðnum verða seldar ýmsar veitingar, svo sem kaffi og meðlæti. Þá verður á staðnum Smootie bar og lítil trédýr verða til sölu.
Á markaðnum verður skipti- og fatamarkaður þar sem fólk getur annað hvort komið með föt og skipt þeim eða gefið á markaðinn. Allur ágóði rennur til hjálparstarfs í Afríku. Krakkarnir í 8. bekk í Stóru-Vogaskóla hvetja fólk til að láta sig ekki vanta.