Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • 70 síðna leiðarvísir fyrir ferðaþjónustuna
    Við Gunnuhver á Reykjanesi.
  • 70 síðna leiðarvísir fyrir ferðaþjónustuna
Fimmtudagur 26. júní 2014 kl. 09:14

70 síðna leiðarvísir fyrir ferðaþjónustuna

- lögfræðileg ráð frá lögmannsstofunni LEX.

Lögmannsstofan LEX hefur gefið út 70 síðna leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna um þau lögfræðilegu atriði sem þarf að huga að við stofnun og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja. Ritinu er dreift ókeypis til ferðaþjónustufyrirtækja um allt land, þar á meðal þeirra rúmlega 100 fyrirtækja í greininni sem starfa á Suðurnesjum.

„Hvergi á landinu hefur verið jafn mikill vöxtur í ferðaþjónustunni og á Suðurnesjum,“ segir Helgi Jóhannesson lögmaður hjá LEX, ritstjóri leiðarvísisins. „Fyrir 10 árum voru 9 gististaðir á Suðurnesjum, en í fyrra voru þeir 28 á skrá Hagstofunnar. Bílaleigum og fólksflutningafyrirtækjum á svæðinu hefur fjölgað gríðarlega og það eru 47 fyrirtæki á Suðurnesjum með leyfi frá Ferðamálastofu.“

„Þegar svo mikill vöxtur á sér stað á skömmum tíma er ekki sjálfgefið að allir hafi nægilega yfirsýn um þau fjölmörgu lagalegu álitamál sem geta komið upp við stofnun og rekstur fyrirtækjanna. Snertifletir ferðaþjónustunnar við yfirvöld, lög og reglur eru margir og ekki allir jafn augljósir. Við hjá ákváðum því að leggja okkar af mörkum til að vísa veginn,“ segir Helgi.

Í leiðarvísinum er farið ítarlega yfir leyfisöflun, stofnun einkahlutafélaga, ábyrgð, tryggingamál, skattamál, samningagerð, samskipti við yfirvöld og fleira. Leiðarvísirinn er ekki tæmandi leiðbeiningarrit, en ætti að gefa góða yfirsýn. Eintök liggja frammi hjá sýslumönnum og dómstólum og einnig er leiðarvísirinn aðgengilegur á vefsíðu LEX svo og á vefsíðu SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar.

„Þessi leiðarvísir okkar hjá LEX er jafnt ætlaður stjórnendum í nýjum sem rótgrónum fyrirtækjum, til að hjálpa þeim að átta sig á því hvort þeir séu með allt á hreinu í lagalegu tilliti, eða hvort þeir þurfa að bæta úr í einstaka atriðum,“ segir Helgi Jóhannesson, áhugamaður um ferðalög innanlands og hefur lokið prófi sem gönguleiðsögumaður frá Leiðsöguskólanum. 
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024