70 ára afmæli Myllubakkaskóla fagnað við sérstakar aðstæður
Sjötíu ára afmæli Myllubakkaskóla var fagnað 17. febrúar þegar nemendur skólans söfnuðust saman framan við aðalinngang skólans og sungu afmælissöng fyrir skólann sinn. Stundin var nokkuð óvenjuleg í sögu skólans, því síðustu mánuði hefur skólinn verið lokaður og nemendur hans stundað nám sitt á víð og dreif um Reykjanesbæ. Ástæðan er alvarlegt tilfelli myglu sem fannst víða í skólabyggingunni.
Þegar afmælissöngurinn hafði verið sunginn var nemendum, kennurum og öðru starfsliði stillt upp í myndatöku í tilefni dagsins. Þegar myndum hafði verið smellt af var blásið til dansveislu á skólalóðinni.
Nú hefur hins vegar elsti hluti skólans verið opnaður aftur og yngstu nemendurnir hafa hreiðrað um sig í endurbættum skólastofum. Endurbæturnar eru þó til bráðabirgða. Nýtingu skólans hefur jafnframt verið breytt og þar sem voru kennarastofur eru í dag skólastofur. Kennararnir fá í staðinn inni í tölvustofunni. Framkvæmdir halda svo áfram í öðrum rýmum skólans við að fjarlægja myglu og fyrirbyggja frekara smit. Meðal annars þarf að rífa hluta skólans og endurbyggja.
Saga Myllubakkaskóla eða Barnaskóla Keflavíkur nær til ársins 1897. Árið 1948 var hafist handa við byggingu skólans á Sólvallagötu og var hann vígður 17. febrúar 1953. Vegna mikilla fólksfjölgunar þurfti að byggja við skólann og var nýbyggingin tekin í notkun 1967. Árið 1973 varð aftur aukning nemenda vegna gossins í Vestmannaeyjum og var þá brugðið á það ráð að kaupa þrjár lausar kennslustofur, svonefnda „kálfa“, og koma þeim fyrir við skólann. Árið 1987 var tekið til við að byggja við Myllubakkaskóla og var sú bygging tekin í notkun 1988.
Árið 1998 var hafist handa við að byggja Heiðarskóla og haustið 1999 er 1. -10. bekk skipt niður á skólana þrjá í Keflavík.
Sumarið 1999 var hafist handa við að stækka Myllubakkaskóla til að hægt sé að einsetja hann. Skólinn varð einsetinn haustið 2000.