Bygg
Bygg

Mannlíf

5000 bollur í Nýja Bakaríi
Mánudagur 27. febrúar 2006 kl. 14:20

5000 bollur í Nýja Bakaríi

Bolludagurinn fagnar íbúum Suðurnesja með sólkskini og mikilli veðurblíðu í dag. Hvergi er eins mikið að gera á þessum degi heldur en einmitt hjá bakarastéttinni sem hafur staðið yfir bollunum allt frá því fyrir helgi.

Víkurfréttir tóku Svan Scheving, bakara í Nýja Bakarí á Hafnargötu, tali og var það hans mat að sjaldan hefðu fleiri bollur runnið ofan í landann. „Það er eins og góða veðrið virki hvetjandi á fólk því við höfum sjaldan lent í eins miklu annríki. Ætli við bökum ekki um 5000 bollur um helgina og í dag og það selst allt ef fram fer sem horfir.“

Svanur segir að vatnsdeigsbollurnar séu nær allsráðandi og er hlutur þeirra sífellt að stækka gagnvart gerbollunum. Gerbollurnar ná nú vart einum tíunda af heildarfjöldanum.

Bolludagurinn á sér langa sögu og er alltaf haldinn mánudaginn í 7. viku fyrir páska. Flengingar og bolluát á þessum degi barst hingað til lands seint á 19. öld og virðast danskir og norskir bakarar hafa átt stærstan hlut í því. Þetta kemur fram í bókinni um Sögu dagana eftir Árna Björnsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn