Bygg
Bygg

Mannlíf

40 ára myndlistarsýning endurvakin
Mánudagur 24. ágúst 2009 kl. 14:57

40 ára myndlistarsýning endurvakin


Listaport BG Bílakringunnar í Grófinni verður væntanlega iðandi af mannlífi á Ljósanótt en þar verður boðið upp á fjölbreyttar listsýningar. Meðal þess sem boðið er upp á er afmælissýning BG þar sem 40 ára myndlistarsýning verður endurvakin. Sýningin þessi var sett upp við vígslu verkstæðis BG í Grófinni fyrir 40 árum en á henni voru verk eftir þá Gunnar Örn, Sigfús Halldórsson, Sigurbjörn Kristinsson, Grétu Björnsson, Helga M.S. Bergmann, Helga S. Jónsson, Þorstein Eggertsson og Helga Skúlason

Listasafn Erlings Jónssonar verður jafnframt  opið en það hefur undanfarin ár verið hýst í húsakynnum BG. Á safninu gefst gestum tækifæri til að líta augum yfirgripsmikið safn listaverka Erlings á glæsilegum ferli hans.

Í einum salnum munu þær stöllur Halla Har, Rut Ingólfsdóttur og Steinunn Guðnadóttir sýna verk sín. Halla, sem er fyrir löngu orðin kunn af listmálun sinni, mun sýna olíumálverk. Rut sýnir gifverk og Steinunn vörur úr leðri með fiskroði. Steinunn hefur vakið athygli fyrir glæsilegar töskur úr þessum efnivið.
Sýning þeirra frá því í fyrra var afar glæsileg og vakti mikla athygli.  Í hóp þeirra hefur bæst Árni Jakob sem er þroskaheftur og sýnir myndir sem hann hefur unnið undir handleiðslu Rutar Ingólfsdóttur.

Listasalur Brauðlistar verður einnig opin þar sem seldar verða lista-snittur, samlokur, kaffi og gos. Þar stendur yfir ljósmyndasýning Ellerts Grétarssonar, Fés og fígúrur en myndirnar sýna kynjamyndir í íslenskri náttúru.

Aðgengi í alla salina er úr porti BG Bílakringlunnar í Grófinni 8.

Bílakjarninn
Bílakjarninn