Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

38 ár frá fyrsta tölublaði Víkurfrétta
Miðvikudagur 15. ágúst 2018 kl. 11:45

38 ár frá fyrsta tölublaði Víkurfrétta

-atvinnuleysi, nýr kaupfélagsstjóri og svangur Svartbakur

Nýr kaupfélagsstjóri, aldurslagasjóður, 550 manns misstu vinnuna og Svartbakurinn heimtar sitt, voru meðal fyrirsagna á fyrstu forsíðu Víkurfrétta sem kom út 14. ágúst 1980. Víkurfréttir fagna í þessari viku 38 ára samfelldri útgáfu blaðs.

Fyrsti útgefendi blaðsins var Prentsmiðjan Grágás en einmitt á sömu forsíðu þessa fyrsta tölublaðs er sagt frá því að útgáfa Suðurnesjatíðinda, forvera Víkurfrétta, hafi legið niðri og ekki tekist að koma út blaði þrátt fyrir tilraunir. Það kom síðan á daginn að Víkurfréttir tóku við keflinu og eru hugsanlega fyrsta fréttablaðið á Íslandi sem er dreift frítt en því var dreift í verslanir, stofnanir, bensínstöðvar og á fleiri stöðvar þar sem fólk gat gripið eintak með sér en þó fyrst um sinn eingöngu í Keflavík og Njarðvík.

Í ársbyrjun 1983 urðu tímamót í útgáfunni þegar nýir eigendur tóku við útgáfu blaðsins. Páll Ketilsson, núverandi eigandi VF og Emil Páll Jónsson keyptu blaðið af Grágás og stofnuðu Víkurfréttir eh. Fyrstu tvö, þrjú árin hafði blaðið komið út um það bil hálfsmánaðarlega og treysti á auglýsingasölu en Suðurnesjatíðindi höfðu verið sölu- og áskriftarblað. Páll og Emil breyttu útgáfutíðninni strax í vikulega og dreifðu því áfram frítt á sama hátt en bættu öðrum byggðarlögum á Suðurnesjum við í hópinn.

Nokkru seinna var farið að dreifa blaðinu inn á heimili á Suðurnesjum eins og það er gert í dag. Árið 1986 var þó hugur í mönnum og þá var í nokkra mánuði blaðið gefið út tvisvar í viku. Árið 1993 fór Emil Páll út úr fyrirtækinu og Páll Ketilsson og fjölskylda eignaðist það og rekur fjölmiðilinn sem VF er orðið í dag, vikublað, vefirnir vf.is og kylfingur.is og Sjónvarp VF.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024