35 nýjar konur á einu ári
Guðmundur Garðarsson, fyrrverandi skipstjóri, hefur ekki setið auðum höndum frá því hann hætti að stunda sjóinn. Fyrir rúmu ári síðan náði hann sér í þekkingu í tréskurði og hefur nú á einu ári skapað samtals 35 konur í rekaviðardrumba sem hann hefur safnað að sér úr fjörum hér á Suðurnesjum. Drumbana sækir hann m.a. að Önglabrjótsnefi á Reykjanesi en vopnaður sporð-járnum og hamri verða þessar kubbslegu konur til.
Það er ekki eins og það vanti konur í líf Guðmundar, því hann á fimm dætur og átta af níu barnabörnum hans eru stelpur. Þá fjölgar konunum sem hann sker í tré hratt. Hluti þeirra er til sýnis í Svarta pakkhúsinu við Hafnargötu í Keflavík. Þar má einnig sjá lampa sem Guðmundur smíðar, þar sem hann sker andlit í trjárætur, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Hilmar Bragi, ljósmyndari Víkur-frétta tók á dögunum. Þar má sjá Guðmund með sköpunarverk sín.