30 ára samstarfsafmæli fagnað á lokahófi
Lýsi og knattspyrnudeild UMFG
Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG verður haldið n.k. laugardag. 30 ára samstarfsafmæli Lýsis og deildarinnar verður fagnað, en svo langt samstarf íþróttafélags og styrktaraðila þykir einstakt.
Margir þekktir tónlistamenn stíga á stokk, svo sem Helgi Björnsson, KK, Björgvin Halldórsson og hljómsveitin Stjórnin. Veistustjóri verður hinn eldhressi Njarðvíkingur Örvar Þór Kristjánsson.