245.is: Heimildarmynd um æða- og kríuvarpið við Norðurkot í Sandgerði
Samfélagsvefurinn í Sandgerði, 245.is, segir frá því að hinn síungi Páll Steingrímsson er enn í fullu fjöri í kvikmyndagerðinni og vinnur um þessar mundir að heimildarmynd um æða- og Kríuvarpið við Norðurkot í Sandgerði.
Páll var kominn á fimmtugsaldur þegar hann útskrifaðist frá kvikmyndadeild New York University árið 1972. Hann stofnaði síðan kvikmyndafélagið Kvik sem hann rak um árabil ásamt félögum sínum Ernst Kettler og Ásgeiri Long. Fyrsta verkefni þeirra var heimildamyndin Eldeyjan, sem fjallaði um Vestmannaeyjagosið 1973, en fyrirtækið varð síðan umfangsmikið á sviði auglýsingamynda fyrir sjónvarp á áttunda áratug síðustu aldar og fram á þann níunda.
Páll hefur frá upphafi síns kvikmyndaferils unnið jafnt og þétt að heimildamyndum með áherslu á náttúru, dýralíf og umhverfi auk fræðslumynda fyrir ýmsa opinbera aðila. Alls fylla myndir hans rúmlega hálft hundrað og hafa margar þeirra verið sýndar og verðlaunaðar um víða veröld.
Páll hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2004 fyrir hinn langa og farsæla feril sinn á sviði heimildamynda og hlaut heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á árinu 2005.
Norðurkot og fuglavík eru eitt stærsta æðavarp hér á Íslandi. Árið 1936 hóf Sigurður K. Eiríksson eða Siggi á Norðurkoti eins og flestir þekkja undir nafni, að aðlaga land sitt að æðavarpi sem hefur dafnað jafnt og þétt í gegnum árin. Árið 1975 voru komin 800 hreiður, en í dag eru 4500-5000 æðakollupör.
Sjá vefinn www.245.is
Ljósmynd: [email protected]