HSS
HSS

Mannlíf

2218 kílómetrar að baki í hringferð Víkurfrétta
Mánudagur 13. júní 2005 kl. 16:12

2218 kílómetrar að baki í hringferð Víkurfrétta

Hringferð Jóns Björns Ólafssonar um Ísland með sumarútgáfu Víkurfrétta er á enda. Hann lagði 2218 kílómetra að baki frá fimmtudegi til sunnudagskvölds. Ferðin hófst með dreifingu austur að Vík í Mýrdal þar sem Jón kynntist koddanum í fyrsta skipti. Nætursvefninn var góður en það var vaknað snemma til að halda ferðinni áfram austur á firði. Þegar við sögðum skilið við Jón Björn síðast var hann á Egilsstöðum á leið í draumalandið og þá búnn að leggja að baki 873 kílómetra.

Nú þegar 2218 km eru að baki hafa Víkurfréttir lokið hringferð sinni um Íslands. Á velflestum ferðamannastöðum og upplýsingamiðstöðum er nú hægt að nálgast ítarlegt efni um Reykjanesið. Pakki með sumarglaðningi er að fara á Vestfirðina og þar með hefur landið verið "dekkað".

Síðast þegar spurðist af Jóni Birni var hann staddur á Egilsstöðum sl. laugardag en þaðan fór hann á Mývatn í blíðskaparveðri en ekið var yfir Möðrudalsöræfin. Þegar Mývetningar höfðu fengið fylli sína af efni um Reykjanesið var haldið áleiðis til Akureyrar með stuttu stoppi við Goðafoss. Á Akureyri var að sjálfsögðu staldrað við á Bautanum til þess að torga einum af þeirra landsfrægu borgurum og svo haldið að Varmahlíð.

Frá Varmahlíð var stefnan tekin á Reykjavík og stoppað á flestum stöðum í þeirri leið. Ekki þótti Jóni það vænlegt að taka Snæfellsnesið á laugardeginum og lét það því bíða til sunnudags.

Sunnudagurinn fór sem sagt allur í Snæfellsnesið og dagurinn í dag var notaður til þess að koma sumarútgáfum Víkurfrétta á alla helstu ferðamanna- og upplýsingastaði á Reykjanesi.

Hekla í Reykjanesbæ fær kærar þakkir fyrir aðstoðina við þetta ferðalag sem og allir þeir hressu og skemmtilegu þjónustuaðilar sem tóku við sumarútgáfum Víkurfrétta.

 

 

Myndirnar: Ferðaútgáfan með Hornafjörð í baksýn. Goðafoss skartaði sínu fegursta á laugardaginn. Myndir: Jón Björn Ólafsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn