2000 blöðrum sleppt á morgun
Ljósanótt í Reykjanesbæ verður sett í 11. sinn við Myllubakkaskóla á morgun þegar nemendur í leik- og grunnskólum sleppa 2000 blöðrum til himins.
Nemendur koma til athafnarinnar í skrúðgöngu þar sem þeir flagga litum skólanna, fánum og trommuslætti.
Gítarsveit nemenda Gítar Myllos stjórnar fjöldasöng sem endar á fyrsta ljósalaginu Velkomin á Ljósanótt og Árni Sigfússon bæjarstjóri setur hátíðina.
Framundan er fjölbreytt dagskrá sem stendur yfir í fjóra daga eða til sunnudagsins 5. september. Má þar nefna gríðarlegan fjölda myndlistarsýninga, tónlistarveislu og skemmtun fyrir alla fjölskylduna enda er ljósanótt fyrst og fremst fjölskylduhátíð.
Dagskrá Ljósanætur má nálgast á ljosanott.is.