Bygg
Bygg

Mannlíf

1500 manns á sýningu Árna Johnsen
Laugardagur 14. febrúar 2004 kl. 21:29

1500 manns á sýningu Árna Johnsen

Áætlað er að um 1500 manns hafi í dag skoðað sýningu Árna Johnsen, Grjótið úr Grundarfirði, sem haldin er í Gryfjunni, nýjum sýningarsal í DUUS-húsum í Reykjanesbæ. Mörg þjóðþekkt andlit mátti sjá við opnun sýningarinnar í dag, auk þess sem þar var forustusveit Sjálfstæðisflokksins með þá Davíð Oddsson forsætisráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra í broddi fylkingar.
Sýningin fékk góða umsögn gesta. Við opnunina var flutt tónlist eftir Árna Johnsen, auk þess sem hinn landskunni Keflvíkingur Gunnar Þórðarson lék á gítar við söng Birtu Sigurjónsdóttur úr Keflavík. Verkin á sýningunni eru 37, bæði innan dyra sem utan. A.m.k. eitt verk hefur verið selt austur á Selfoss, samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta.

VF-ljósmyndir: Hilmar Bragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn