HSS
HSS

Mannlíf

105km lagðir að baki á öðrum degi
Fimmtudagur 12. ágúst 2010 kl. 09:00

105km lagðir að baki á öðrum degi


Haraldur Hreggviðsson, sem þessa dagana fer hjólandi eftir hringveginum í félagsskap Haraldar Helgasonar, hjólaði í gær 105 kílómetra frá Skógum að Kirkjubæjarklaustri á öðrum degi verkefnisins „Hjólað til heilla.“ Vegalengdina hjólaði hann á fjórum tímum og var hámarkshraðinn 70,6km. 
Þeir nafnar safna áheitum til styrktar krabbameinssjúkum börnum en verkefnið er á vegum Lionsklúbbs Njarðvíkur.

Ferð þeirra félaga hefur því gengið mjög vel en fyrsta daginn lögðu þeir að baki 154 kílómetra.

Hægt er skoða myndir frá deginum hér

Facebooksíða „Hjólað til heilla” er hér


Símanúmer söfnunarinnar er 901-5010
þá dragast 1000,- af símareikningnum

Styrktarreikningur:
1109-05-412828
kt. 440269-6489


Efri mynd: Hjólakappinn Halli Hreggviðs fagnar hverjum áfanga ferðarinnar. Hér er hann kominn í Vík með Reynisdranga í bakgrunni.

Neðri mynd: Þjónustubíllinn við Skógarfoss. Bílnum stýrir Halli Helga sem er nafna sínum til halds og trausts í ferðinni.



Bílakjarninn
Bílakjarninn