HSS
HSS

Mannlíf

10. bekkingar völdu jólahúsið í Garði 2013
Myndir af vef Sveitarfélagsins Garðs.
Sunnudagur 22. desember 2013 kl. 15:04

10. bekkingar völdu jólahúsið í Garði 2013

Nemendur í 10. bekk Gerðaskóla tóku að sér það verkefni að þessu sinni að velja jólahúsið í Garði 2013.

Þetta var samvinnuverkefni nemendanna. Þau skoðuðu ljósaskreytingar húsa í Garðinum, sem og aðrar jólaskreytingar.  

Nemendurnir komust að þeirri niðurstöðu að jólahúsið í Garði 2013 væri Skagabraut 16. Eigendur hússins eru Sverrir Karlsson og Guðlaug Jónsdóttir.

Nemendur 10. bekkjar luku verkefni sínu með því að aðstoða bæjarstjórann í Garði við að afhenda eigendum Skagabrautar 16 verðlaunin fyrir jólahúsið í Garði 2013.



Bílakjarninn
Bílakjarninn