Yfir 100 kylfingar á Húsatóftavelli
Golfmót í Grindavík um miðjan nóvember
Yfir 100 kylfingar tóku þátt í Nóvembermóti GG sem fram fór á Húsatóftavelli í Grindavík í gær, sunnudag. Kylfingar voru ræstir út um leið og það fór að birta og síðustu kylfingar komu í hús skömmu eftir myrkur.
Kylfingar voru heilt yfir himinlifandi með geta leikið keppnisgolf um miðjan nóvember og einnig með aðstæður. Aðeins rigndi um morgunin en að sama skapi var mjög hægur vindur. Margir kylfingar voru að leika vel en keppt var í punktakeppni. Ef veður verður gott um næstu helgi þá er stefnan á að endurtaka leikinn. Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar.
Helstu úrslit:
Höggleikur: Hólmar Waage GOB - 71 högg
1. sæti punktakeppni: Svava Agnarsdóttir, GG - 37 punktar
2. sæti punktakeppni: Sveinbjörn Guðmundsson, GK - 36 punktar
3. sæti punktakeppni: Kjartan Einarsson, GK - 35 punktar
Nándarverðlaun á 7. braut: Jónas Baldursson, GKJ 1,25m
Nándarverðlaun á 18. braut: Svava Agnarsdóttir, GG 20,5 cm