Bygg
Bygg

Íþróttir

Voru 19 stigum undir í hálfleik en unnu Stólana
Fimmtudagur 26. janúar 2017 kl. 21:15

Voru 19 stigum undir í hálfleik en unnu Stólana

Ótrúleg endurkoma Njarðvíkinga

Njarðvíkingar unnu sinn þriðja sigur í röð í Domino’s deild karla í körfubolta í ótrúlegri endurkomu gegn Tindastólsmönnum á heimavelli sínum í kvöld. Eftir að hafa verið 19 stigum undir í hálfleik unnu Njarðvíkingar síðari hálfleik 56:31 og leikinn sjálfan með sex stigum, 92:86.

Leikurinn hafði upp á allt að bjóða, troðslur, flautukörfur og endurkomu af bestu gerð. Logi Gunnarsson fór fyrir sínum mönnum með 20 stig en margir leikmenn voru að leggja í púkkið í kvöld fyrir Njarðvík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Njarðvíkingar sem eri í 9. sæti eru nú jafnir að stigum og nágrannar sínir í Keflavík og Grindavík sem eiga leiki til góða á morgun, en pakkinn um miðja deild er mjög þéttur.

Njarðvík-Tindastóll 92-86 (21-28, 15-27, 30-20, 26-11)
Njarðvík: Logi  Gunnarsson 20/5 stoðsendingar, Björn Kristjánsson 14/7 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 14, Johann Arni Olafsson 13/6 fráköst, Myron Dempsey 12/7 fráköst, Jeremy Martez Atkinson 9/6 fráköst, Jón Arnór Sverrisson 6, Jón Sverrisson 4, Gabríel Sindri Möller 0, Hermann Ingi Harðarson 0, Snjólfur Marel Stefánsson 0, Adam Eiður Ásgeirsson 0.


Tindastóll: Christopher Caird 39/6 fráköst, Pálmi Geir Jónsson 13, Antonio Hester 13/8 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 10/7 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 8/7 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 2/6 fráköst, Viðar Ágústsson 1, Jónas Rafn Sigurjónsson 0, Finnbogi Bjarnason 0, Hannes Ingi Másson 0, Þröstur Kárason 0, Friðrik Þór Stefánsson 0.