Vinningshafar í bikargetraun Landsbankans
Í vikunni voru dregnir út tveir heppnir vinningshafar í getraunaleik sem Landsbankinn efndi til í útibúum sínum í Keflavík og Grindavík í tengslum við bikarúrslitaleiki karla og kvenna í körfubolta þann 18. febrúar sl. í Laugardalshöll.
Vinningshafarnir fengu hvor um sig 15.000 króna inneign á Framtíðargrunni hjá Landsbankanum.
Á meðfylgjandi myndum má annars vegar sjá vinningshafann í Grindavík, Telmu Sif Reynisdóttur, 11 ára, og Jón Fannar Guðmundsson, þjónustufulltrúa og hins vegar vinningshafann í Keflavík Emilíu L. Magnúsdóttur, 12 ára, ásamt Friðgeiri M. Baldurssyni, útibústjóra í Keflavík.