HSS
HSS

Íþróttir

Vilhálmsbikarinn í Leiru á morgun - Íslandsmót í greensome
Mánudagur 6. ágúst 2012 kl. 16:36

Vilhálmsbikarinn í Leiru á morgun - Íslandsmót í greensome

 

Vilhjálmsbikarinn, þekktasta opna mót Golfklúbbs Suðurnesja verður haldið á morgun, þriðjudaginn 7. ágúst á Hólmsvelli. Mótið er með greensome fyrirkomulagi og verður jafnframt Íslandsmót í greensome. Glæsileg verðlaun verða að venju í mótinu sem hefst kl. 16 en mæting er kl. 15.

Í greensome leika tveir kylfingar saman í liði, báðir taka upphafshögg á hverri holu en velja síðan annað og slá svo eftir það annað hvert högg. Verðlaun verða veitt fyrir fimm efstu sætin og nándarverðlaun verða á öllum par 3 brautum og þá verða veglegir vinningar dregnir úr skorkortum í mótslok.
Skráning stendur yfir á golf.is.

Hólmsvöllur er í frábæru ásigkomulagi og höfðu eldri kylfingar sem héldu sitt Íslandsmót um síðustu helgi, orð á því. Eftir Vilhjálmsbikarinn tekur við annað stórmót um næstu helgi en þá fer fram Íslandsmót í sveitakeppni í efstu deild karla.

Bílakjarninn
Bílakjarninn