Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Víkurfréttir hlutu fjölmiðlagyðjuna
Þriðjudagur 11. desember 2007 kl. 17:27

Víkurfréttir hlutu fjölmiðlagyðjuna

Víkurfréttir hlutu fjölmiðlagyðju knattspyrnudeildar Keflavíkur árið 2007 en félagið hefur verðlaunað þann fjölmiðil á íslandi sem hefur staðið sig best í umfjöllun knattspyrnunar með þessum glæsilega grip. Rúnar Arnarsson, formaður knattspyrnudeildarinnar, afhenti Páli Ketilsyni, ritstjóra Víkurfrétta, fjölmiðlagyðjuna í sérstöku hófi í félagsheimili Keflavíkur í dag.


Við þetta tækifæri afhenti Rúnar mörgum öðrum góðum stuðningsaðilum, sem stutt hafa félagið, viðurkenningu en Rúnar fór yfir árangur liðsins í ár sem allir voru sammála um að hefði getað verið betri. Rúnar lætur af störfum sem  formaður félagsins um áramót en hann hefur sinnt því starfi í áratug og á þeim tíma hefur Keflavík meðal annars unnið til tveggja bikarmeistaratitla.

 


 

Vf-myndir/Andri Már

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024