Víkingur og Keflavík skildu jöfn
Víkingur og Keflavík skildu jöfn, 1:1, í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. Daníel Hjaltason kom Víkingi yfir úr vítaspyrnu strax á 3. mínútu en Ólafur Ívar Jónsson jafnaði fyrir Keflvíkinga á 37. mínútu.Þá sigraði Stjarnan lið Breiðabliks, 1:0. Sigurmarkið skoraði þjálfarinn Valdimar Kristófersson á 7. mínútu.