Viðurkenningar veittar á aðalfundi UMFN
Aðalfundur UMFN var haldinn 11. maí og var vel mætt á fundinum sem haldinn var í Íþróttamiðstöðinni í Njarðvík. Stefán Thordersen formaður flutti skýrslu stjórnar og Ágústa Guðmarsdóttir gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins og þeir samþykktir.
Á fundinum var veitt nýtt heiðursmerki sem er æðsta merki UMFN gullmerki með lárviðarsveig. Eftirfarandi einstaklingar voru heiðraðir:
Æðsta heiðurmerki UMFN gullmerki með lárviðarsveig:
Hilmar Hafsteinsson fyrir fótbolta, handbolta, körfubolta og stjórnarstörf.
Gullmerki UMFN:
Jón Bjarni Helgason fyrir sund, körfubolta og stjórnarstörf.
Hermann Jakobsson fyrir körfubolta, kraftlyftingar og stjórnarstörf.
Ólafur Thordersen fyrir handbolta, fótbolta og stjórnarstörf.
Eftirtaldir voru sæmdir silfurmerki UMFN:
Júlíus Valgeirsson fyrir körfubolta, þjálfun og stjórnarstörf.
Viðar Kristjánsson fyrir stjórnarstörf og þjálfun.
Guðmundur Sæmundsson fyrir stjórnarstörf.
Andrés Ari Óttósson fyrir stjórnarstörf.
Magnús Þór Kristófersson fyrir fótbolta og stjórnarstörf.
Friðrik Pétur Ragnarsson fyrir fótbolta, handbolta, körfubolta og þjálfun.
Alexander Ragnarsson fyrir körfubolta og stjórnarstörf.
Eftirtaldir voru sæmdir bronsmerki UMFN:
Jóhannes Albert Kristbjörnsson fyrir körfubolta.
Bjarni Sæmundsson fyrir fótbolta og stjórnarstörf.
Páll Kristinsson fyrir körfubolta.
Guðni Erlendsson fyrir fótbolta og þjálfun.
Kristinn Einarsson fyrir körfubolta
Viðurkenningar fyrir vel unnin störf fyrir félagið hljóta:
Sigmundur Már Herbertsson fyrir dómgæslu í körfubolta.
Helgi Helgason
Snorri Jónas Snorrason
Thor Ólafur Hallgrímsson
Íþróttamaður UMFN 2010
Stefán Sturla Svavarsson lyftingamaður var kjörin sem íþróttamaður UMFN 2010.
Íþróttamenn deilda UMFN 2010
Jóhann Árni Ólafsson körfuboltadeild
Stefán Sturla Svavarsson lyftingadeild
Ingvar Jónsson knattspyrnudeild
Kristinn Ásgeir Gylfason sunddeild
Ólafsbikarinn starfsbikar UMFN 2010
Halldór Rósmundur Guðjónsson knattspyrnudeild fékk bikarinn að þessu sinni fyrir frábær störf fyrir deildina.
Ný stjórn UMFN
Stefán Thordersen formaður
Þórunn Friðriksdóttir varaformaður
Anna Andrésdóttir ritari
Ágústa Guðmarsdóttir gjaldkeri
Hermann Jakobsson meðstjórnandi
Varastjórn:
Ólafur Eyjólfsson
Sigríður H. Ragnarsdóttir
Skoðunarmenn reikninga:
Valþór Söring
Ingigerður Sæmundsdóttir
Þórður Karlsson til vara