Viðureign toppliðanna á morgun
Kvennaliði Keflavíkur hefur gengið ákaflega vel í Lengjudeild kvenna í sumar. Stelpurnar eru efstar í deildinni með eins stigs forskot á Tindastól sem er í öðru sæti. Liðin mætast í toppslag á Nettóvellinum á morgun, sunnudag. Fyrri leikur liðanna fór 1:1 fyrir norðan svo það má búast við hörkurimmu þessa tveggja sterku liða.
Gunnar M. Jónsson, þjálfari Keflavíkur, ræddi við blaðamann Víkurfrétta um komandi leik og stöðuna á sínum leikmönnum. Keflvíkingar voru að bæta við nýjum leikmanni, sú heitir Claudia Nicole Cagnina og er perúsk landsliðskona sem er ætlað að fylla skarð Anitu Lindar Daníelsdóttur sem er farin í nám erlendis.
– Ég sá að þið voruð að bæta við ykkur leikmanni, perúskri landsliðskonu.
„Já, við vorum að missa sterkan leikmann. Hún Anita Lind var að fara út í skóla og því þurftum við að bæta við okkur og reyna að fylla hennar skarð. Hún er í sóttkví svo við eigum eftir að sjá hvernig hún fittar inn í liðið. Hún heitir Claudia Nicole Cagnina og er bandarísk með ítalskt vegabréf og hefur leikið með landsliði Perú. Hún verður með okkur út tímabilið og er komin með leikheimild. Við eigum eftir að sjá hvernig hún er en ef hún stendur sig vel þá verður líklega samið við hana áfram.“
– Verður hún klár í næsta leik?
„Hún á að fara í seinni sýnatöku á föstudaginn svo vonandi nær hún æfingu með okkur á föstudag og laugardag – og verður svo klár í leikinn á sunnudag.“
– Eru allar heilar hjá þér?
„Já, það eru búið að vera svolítið meiðsli hjá okkur en þær eru að skríða saman. Ég held að þær séu bara allar heilar núna. Það er bara fínt stand á hópnum svo við verðum klár í toppslaginn á sunnudaginn.
Þetta er mjög gott lið sem við erum að fara að mæta með sterka útlendinga, mjög góðan markmann, mjög góðan leikmann á miðjunni og svo hefur framherjinn hjá þeim vakið mikla athygli og mörg úrvalsdeildarlið vildu fá hana en hún er núna á þriðja tímabili hjá Tindastóli – vill bara vera á Króknum.“