Víðismenn unnu örugglega í grannaslagnum
Video: Sjáðu mark og tilþrif úr leiknum
Búist var við hörkuleik þegar Reynismenn tóku á móti grönnum sínum Víði í Garði í 3. deildinni í fótbolta karla í gær. Gestirnir frá Garðinum unnu þó öruggan 0-3 sigur og voru mun betri aðilinn á vellinum.
Fyrsta mark Víðis skoraði Milan Tasic rétt áður en flautað var til hálfleiks. Helgi Þór Jónsson bætti við marki fyrir Garðbúa á 77. mínútu og maður leiksins, Róbert Örn Ólafsson, bætti síðasta markinu við í uppbótartíma fyrir Víði.