Víðismenn fara vel að stað
Víðismenn hófu leik í 3. deildinni í fótboltanum með sigri nú um helgina gegn KFR. Leikið var á heimavelli Garðbúa en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna. Þeir Ólafur Ívar Jónsson og Tómas Pálmason skoruðu mörkin í sitthvorum hálfleiknum, en staðan í hálfleik var 1-1.
Næsti leikur Víðis er gegn ÍH í Hafnarfirði þann 24. maí næstkomandi.