Íþróttir

Víðismenn á toppnum í 2. deild karla eftir þrjár umferðir
Sunnudagur 19. maí 2019 kl. 11:48

Víðismenn á toppnum í 2. deild karla eftir þrjár umferðir

Þróttarar hafa gert tvö jafntefli - Sandgerðingar um miðja deild

Víðir úr Garði trón­ir á toppi 2. deild­ar karla í fót­bolta eft­ir 3:0 heima­sig­ur á Tinda­stóli í 3. um­ferðinni á laugardaginn.

Ari Steinn Guðmunds­son, Helgi Þór Jóns­son og Mehdi Hadra­oui skoruðu mörk Víðis í fyrri hálfleik. Víðir er nú með sjö stig, einu stigi meira en næstu fjög­ur lið eftir þrjár umferðir. 

Þróttarar frá Vogum heimsóttu KFG úr Garðabæ sem vann sann­fær­andi 3:0-heima­sig­ur á Þrótturum á föstudagskvöld. Þróttarar gerðu jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum. 

Public deli
Public deli

Reynir Sandgerði fékk Hött/Huginn í heimsókn í 3. deildinni og jöfnuðu Reynismenn leikinn í blálokin 1-1 með marki frá Birki Frey Sigurðssyni. Reynir eru í sjötta sæti 3. deildar með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Næstu leikir:

Þróttarar frá Vogum heimsækja Vestra. 

Víðir heimsækir Selfoss í toppslag 2. deildar. 

Reynir mætir Kórdrengjum á útivelli.