Bygg
Bygg

Íþróttir

  • Víðir vann góðan sigur á toppliði Njarðvíkur
  • Víðir vann góðan sigur á toppliði Njarðvíkur
Fimmtudagur 29. júní 2017 kl. 22:49

Víðir vann góðan sigur á toppliði Njarðvíkur

Víðir vann nágranna sína úr Njarðvík 3:1 í 2. deild karla í knatt­spyrnu í kvöld. Helgi Þór Jónsson skoraði fyrsta mark Víðis á 32. mínútu.  Njarðvíkingar jöfnuðu fimm mínútum síðar með marki Atla Freyrs Ottesens Pálssonar.
Í hálfleik var staðan 1:1 og var þannig þangað til á lokamínútunum að Patrik Snær Atlason skorar mark á 90 mínútu og svo er Helgi Þór með sitt annað mark á 92 mínútu.  Lokastaðan því 3:1 fyrir Víði.
Við sigurinn fór Víðir í 4. sæti með 15 stig.  Njarðvík situr enn í fyrsta sæti þrátt fyrir tap í kvöld með 17. stig.  Víðismenn fögnuðu vel í lok leiksins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn