Víðir í fjórða sæti eftir jafntefli í kvöld
Víðir gerði 1:1 jafntefli við Aftureldingu í annari deild karla í Garðinum í kvöld. Það var Aleksandar Stojkovic sem skoraði fyrsta markið fyrir Víði á 32. mínútu. Gregory Thomas Conrad jafnaði fyrir Aftureldingu á 40. mínútu. Þetta reyndist vera lokamarkið og því endaði leikurinn 1:1 jafntefli. Víðir er með sextán stig í 4. sæti í deildarinnar. Næsti leikur Víðis er laugardaginn 8. júlí við Magna á Grenivík.