Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Víðir Garði og Þróttur Vogum sameinast um meistaraflokk kvenna
Víðir Garði og Þróttur Vogum sameinast í kvennaboltanum næsta sumar.
Þriðjudagur 23. janúar 2018 kl. 09:12

Víðir Garði og Þróttur Vogum sameinast um meistaraflokk kvenna

Víðir og Þróttur hafa ákveðið að senda sameiginlegt lið í bikarkeppni KSÍ undir merkjum Víðir/Þróttur V. Fram kemur í yfirlýsingu frá Víði/Þrótti að hugmyndin kviknaði fyrst þegar KSÍ fjölgaði um eina deild í meistaraflokki kvenna. Á dögunum hittust fulltrúar félaganna og ákveðið var að byrja á þátttöku í bikarkeppninni. Ef vel tekst til þá verður tekin ákvörðun hvort það sé grunnur til að byggja á fyrir næsta ár.
 
Félögin vilja efla kvennaknattspyrnuna á Suðurnesjunum þvi þar eru fullt af stelpum sem hafa lagt skóna a hilluna, eru í hléi frá knattspyrnu eða hafa flosnað upp úr liðunum sem fyrir eru og því viljum við láta reyna á þetta uppbyggilega verkefni í sameiningu að sögn Marteins Ægissonar framkvæmdastjóra Þróttar og Sólmundar Einvarðssonar formanns Víðis. 
 
Meistaraflokkur kvenna hefur ekki verið starfræktur í Garði síðan 2005 ( að undanskildu 2009 þar sem var spilað undir merkjum GRV) og verður þetta í fyrsta sinn sem Þróttur Vogum sendir lið til leiks í meistaraflokki kvenna. Aðilar sem langar til að taka þátt í þessu verkefni hvort sem er leikmenn eða sjálfboðaliðar er bent á að hafa samband við Sólmund hjá Víði í síma 867-7111 netfang [email protected] eða Marteinn hjá Þrótti í síma 892-6789 netfang [email protected]
Public deli
Public deli