Víðförlir Keflvíkingar snúa aftur frá Kóreu

Hörður sagði í viðtali við Víkurfréttir að dvölin hafi verið afar skemmtileg. „Þetta var mjög spennandi að fara til svona framandi lands, en aðstaðan var líka frábær og þeir spila góðan fótbolta.“
Talið er að niðurstöðu sé að vænta í málinu um eða eftir helgina en þeir félagar eru sammála um að þeir myndu skoða málið vel, enda ekki á hverjum degi sem íslenskum knattspyrnumönnum býðst þess háttar tækifæri.
Þeir félagar hafa gert víðreist eftir að tímabilinu hér heima lauk og sér ekki enn fyrir endann á þeim málum því Þórarinn heldur út strax eftir helgina til reynslu hjá norska liðinu Bryne.