HSS
HSS

Íþróttir

Viðburðaríkt afmælisár hjá Golfklúbbi Suðurnesja
Sjálfboðaliðar ársins voru kjörnir þeir Örn Ævar Hjartarson og Gísli Grétar Björnsson. Þeir eru hér með Sveini Björnssyni, formanni GS.
Laugardagur 14. desember 2024 kl. 06:09

Viðburðaríkt afmælisár hjá Golfklúbbi Suðurnesja

Rekstur Golfklúbbs Suðurnesja gekk ágætlega á sextíu ára afmælisári þar sem hápunkturinn var Íslandsmót í höggleik á Hólmsvelli. Tólfhundruð þúsund króna nettóhagnaður var af rekstri GS á árinu. Sextíu félagar mættu á aðalfundinn sem var viðeigandi á 60 ára afmælisári.

Sveinn Björnsson var endurkjörinn formaður. Hann fór yfir skýrslu stjórnar en starfið gekk vel á árinu þó svo að leiknum hringjum gesta hafi fækkað um fjórðung en það var aðallega skrifað á ótíð stóran hluta sumarsins. Leiknir hringir voru 10.911 sem er 1% aukning frá árinu 2023.

Á Íslandsmótinu var Hólmsvelli „snúið“ og leikið þannig það sem eftir lifði sumars en mótið var 18.-21. júlí. Nokkur umræða hefur spunnist hvort breytingin sé viðvarandi eða hvort það eigi að snúa vellinum aftur til fyrra horfs. Var greint frá því á fundinum að skoðanakönnun yrði send út til félaga til að heyra þeirra álit. Viðamiklar framkvæmdir og endurbætur voru gerðar á Hólmsvelli vegna Íslandsmótsins, á vellinum sjálfum, í nágrenni klúbbhúss og víðar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kylfingar ársins voru kjörin þau Fjóla Margrét og Logi Sigurðsson en hann varð Íslandsmeistari í holukeppni.

Sjálfboðaliðar ársins voru kjörnir þeir Örn Ævar Hjartarson og Gísli Grétar Björnsson.

Velta ársins var 141 milljón króna og gjöld samtals 129,5 mkr. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var því 11,6 mkr. en þegar vaxtagjöld höfðu verið reiknuð var hagnaðurinn 1,2 mkr.

Árgjaldið í GS hækkaði í samræmi við verðbólgu en hæsta árgjaldið er fyrir 27-66 ára og er það 109.500 kr. Fjöldi félaga í GS er nú 757 talsins, konur 27,7% og karlar 72,3%.

Ný stjórn klúbbsins fyrir árið 2025:

Formaður:

Sveinn Björnsson

Aðrir stjórnarmenn:

Guðrún Þorsteinsdóttir

Gunnar Ellert Geirsson

Karitas Sigurvinsdóttir

Ragnar Olsen

Vignir Elísson

Örn Ævar Hjartarson.

Íslandsmótið í höggleik fór fram á Hólmsvelli í sumar. Hér má sjá mæðgurnar Guðfinnu Sigurþórsdóttur, fyrsta og þrefaldan Íslandsmeistara kvenna og dóttur hennar, Karen Sævarsdóttur sem varð Íslandsmeistari átta ár í röð.