HSS
HSS

Íþróttir

„Við vorum bara karlmenn í kvöld,“ segir Guðjón Skúlason
Föstudagur 1. apríl 2011 kl. 22:06

„Við vorum bara karlmenn í kvöld,“ segir Guðjón Skúlason

„Þetta var tæpt og spennandi þar sem við fáum svakalega körfu á okkur í restina en við vorum bara karlmenn og kláruðum þetta með stæl,“ sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflvíkinga eftir sigurinn á KR í kvöld. Keflavík sigraði KR í framlengingu 135-139 eftir að KR rétt komst í framlengingu með frábærri þriggja stiga körfu frá Brynjari Björnssyni. Staðan í einvíginu er því 2-1 fyrir KR og fer næsti leikur fram á mánudaginn kemur í Toyotahöllinni.

„Þetta er fyrsti leikurinn sem ég er virkilega ánægður með alla okkar spilamennsku. Ég hef verið ánægður með vissa hluti í síðustu leikjum en þessi er sá allra besti hjá okkur í úrslitakeppninni,“ sagði Guðjón. Keflavík hafði yfirhöndina mest allan leikinn. Það var ekki fyrr en á lokasekúndunni sem Brynjar Björnsson, skytta KR-inga, setti ótrúlegan þrist niður og náði að jafna metin. Þegar rétt tæpar tvær mínútur voru til leiksloka fékk Sigurður Gunnar Þorsteinsson gott tækifæri til að tryggja Keflavík sigurinn en fór illa með gott færi og því var blásið til framlengingar.

Keflvíkingar komu sterkir inn í framlenginguna og náðu strax fimm stiga forskoti. Magnús Þór Gunnarsson var eldheitur fyrir utan þriggja stiga línuna og eins Andrija Ciric en hann átti stórkostlegan leik þar sem hann skoraði 42 stig.

Keflavík kláraði leikinn örugglega í framlengingu og Keflavíkurhraðlestin er nú að detta loks í gang. Lokatölur urðu 135-139, Keflavík í vil.

Stigahæstir í liði Keflavíkur voru Andrija Ciric með 42 stig, Thomas Sanders með 22 stig og 9 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson með 20 stig og 11 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson með 14 stig og 9 stoðsendingar og Gunnar Einarsson með 12 stig.
Stigahæstur í liði KR var Marcus Walker með 29 stig þrátt fyrir að vera ekki með stig fyrir hálfleik.

Viðtöl og svipmyndir frá leiknum síðar.

[email protected]

Bílakjarninn
Bílakjarninn