Vesna og Guðný með þrennur gegn ÍR
Keflavíkurkonur burstuðu ÍR 7-0 á Keflavíkurvelli í kvöld í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru vægast sagt skelfilegar en Keflavík setti engu að síður upp markasýningu þar sem þær Guðný Petrína Þórðardóttir og Vesna Smiljokovic voru báðar með þrennu. Danka Podovac gerði síðan eitt mark fyrir Keflavík en þær Vesna og Guðný voru bestu menn vallarins í kvöld.
Nánar verður greint frá leiknum síðar...