Verja Grindvíkingar Íslandsmeistaratitilinn i körfu?
Hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í Grindavík í kvöld.
Grindvíkingar og Stjarnan leika til úrslita í Röstinni í Grindavík í kvöld um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Bæði lið hafa unnið tvo leiki til þessa. Grindvíkingar hafa titil að verja en þeir urðu meistarar í fyrra eftir sigur á Þór í úrslitum.
Grindvíkingar komu til baka í fjórða leiknum á heimavelli Stjörnunnar á fimmtudagskvöld og unnu góðan sigur eftir að hafa tapað þriðja leiknum.
Það er ekki von á öðru en að húsfyllir verði í Röstinni í kvöld og stemmningin mögnuð.
Vefsíðan karfan.is fékk nokkra spekinga til að spá í spilin fyrir leikinn. Hér má sjá þá umfjöllun.
Grindvíkingar fögnuðu deildarmeistaratitilinum. Nú er spurning hvort þeir verji Íslandsmeistarartitilinn.