Verður seint kjörin prúðasti leikmaðurinn
Pálína María Gunnlaugsdóttir hefur verið frábær í liði Keflavíkur í Iceland Express-deild kvenna í körfuboltanum í vetur og líklega hafa fáir leikið betur en hún í deildinni. Pálína er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt 100% fram þegar stigið er inn á völlinn. Hún hefur í nógu að snúast en auk þess að leika körfubolta með Keflavík er Pálína í námi í háskólanum og vinnur samhliða náminu.
Pálína sem búsett er í Kópavogi er í viðskiptafræði við Háskóla Íslands á markaðsfræði og alþjóðaviðskiptabraut samhliða körfuboltanum. Hún var alltaf í Smáraskóla en hefur komið víða við í framhaldsskólum en útskrifaðist að lokum úr FG. Hún er að ljúka öðru árinu sínu í viðskiptafræði og er auk þess að vinna með skólanum, en hún starfar með fötluðum. Það hefur hún gert í u.þ.b. þrjú ár og á sumrin vinnur hún í Reykjadal, í sumarbúðum fyrir fatlaða. „Mér líkar það ótrúlega vel, þetta er krefjandi starf en líka ótrúlega gaman,“ segir Pálína sem greinilega hefur nóg á sinni könnu. Allt sem hér er ofantalið eru sjálfsagt smámunir miðað við það hlutverk sem hún gegnir dag frá degi, það er sjálft móðurhlutverkið en Pálína á tveggja ára dóttur frá fyrra sambandi.
Það stóð ekki til hjá Pálínu að eignast barn fyrir rúmum tveimur árum og hún viðurkennir að þetta hafi verið henni erfiður tími. „Þetta var mjög erfitt. Við vorum einmitt að spila við KR í úrslitakeppninni þegar þetta kom í ljós og ég stóð mig alls ekki vel í þeirri rimmu. Hvort það hafi verið óléttunni að kenna veit ég ekki,“ segir Pálína. „Ég átti svolítið erfitt með að sætta mig við þetta en mér finnst þetta æðislegt í dag. Þetta var samt skrýtið að þurfa að fara að hugsa um einhvern annan en sjálfan sig, og setja einhvern annan í 1. sæti. Allt í einu hefur maður engan tíma og fær lítinn svefn.“ Þetta voru Pálínu mikil viðbrigði og það tók hana tíma að venjast þessu eins og oft vill verða hjá ungum foreldrum.
Hvernig gengur að samtvinna allt þetta? „Þetta er púsluspil en mamma og pabbi hjálpa mér mjög mikið, en ég bý hjá þeim þessa stundina. Ég er alltaf að biðja þau um að taka sér frí úr vinnu til að hjálpa mér með stelpuna þannig að þetta hefst þar sem ég fæ mikla hjálp.“
Pálína fór á fyrstu æfinguna sína aðeins þremur vikum eftir að dóttir hennar fæddist og svo aðeins viku síðar spilaði hún leik gegn fyrrum félögum sínum í Haukum. Hún er á því að það hafi verið nauðsynlegt fyrir sig og geðheilsu sína að komast aftur á völlinn. Það tók Pálínu svo það sem eftir lifði tímabils að koma sér aftur í fyrra form. „Ég missti alveg heilt ár út en ég hef aldrei meiðst,“ segir hún og bankar í borðið og brosir. Það hefur vart farið framhjá þeim sem fylgjast með kvennakörfunni að Pálína er í toppformi en hún hefur líklega aldrei verið í jafn góðu formi að eigin sögn. „Þegar maður þarf að fara að hugsa um einhvern annan en sjálfan sig þá fer maður líka að hugsa hvað maður setur ofan í sig. Maður minnkar skyndibitann og fer að borða meiri heimilismat eins og fisk t.d.“ Hún segist ekkert vera að æfa öðruvísi, hún eyði ekkert meiri tíma í ræktinni eða slíkt en hún fer að lyfta með körfunni þegar það á við en það hefur hún alltaf gert.
Keflvíkingar hófu titilvörn sína í úrslitakeppninni í gær og er Pálína rosaleg spennt og hlakkar mikið til. „Það verður hörkurimma gegn Haukum í fyrstu umferð. Þær eru með hörkulið og voru að fá nýjan útlending sem er virkilega góð þannig að við þurfum að mæta tilbúnar ef við ætlum okkur í úrslitin.“ Pálína býst við einni skemmtilegustu úrslitakeppni kvennaboltans í langan tíma og hún segir að allir geti unnið alla. „Báðar rimmurnar gætu farið í oddaleik og það sama verður uppi á teningnum þegar í úrslitin verður komið, eintóm veisla bara.“
Hrædd um að fá golfdellu
Áttu þér einhver önnur áhugamál? „Þau eru ekki svo mörg. Á sumrin vinnur maður bara sem mest en ég hef farið til New York undanfarin sumur og finnst gaman að ferðast. Ég hef áhuga á að spila golf og er búin að vera að geyma það sport þangað til ég verð eldri því ég er hrædd um að fá golfdellu og geta ekki hætt. En kærastinn minn er búinn að lofa því að taka mig á golfvöllinn í sumar og kenna mér nýja boltaíþrótt.“
Fór frekar á æfingu en í afmæli
Hvernig kom það til að þú komst til Keflavíkur á sínum tíma frá Haukum, aðal andstæðingum Keflvíkinga á þessum tíma? „Mig langaði bara að breyta til, ég var búin að vinna flest sem í boði var með Haukum og mig langaði að fara í annan klúbb, Keflavík er stærsta nafnið í kvennakörfunni og mig langaði að takast á við nýjar áskoranir.“
Var ekkert erfitt að venja sig á að spila skyndilega með aðal andstæðingunum? „Það kom bara mjög fljótt og var ekkert svo erfitt. Við þekktumst margar í gegnum landsliðsferðir með yngri landsliðum og það var bara gaman,“ en Pálína gekk til liðs við Keflvíkinga tímabilið 2007-2008 þegar hún var um tvítugt. „Það var þó erfitt að spila á móti Haukunum fyrst, mikið um blendnar tilfinningar í fyrstu leikjunum en það er ekki svo mikið lengur þar sem Haukar eru gjörbreytt lið frá því að ég var þar,“ segir Pálína sem þó sleit fyrstu körfuboltaskónum hjá Fylki í Árbænum. Þar var Pálína frá 11 til 13 ára aldurs og þegar fjölskyldan flutti búferlum í Kópavog þá stoppaði hún við í Breiðablik í rúmt ár.
„Svo hringdi pabbi hennar Helenu (Sverrisdóttur) í mömmu og spurði hvort ég vildi ekki koma í Hauka þar sem hann var að þjálfa. Ég er ekki viss hvort ég væri enn að æfa í dag ef þetta símtal hefði ekki átt sér stað,“ en tíminn hjá Haukum var afar farsæll og liðið fullt af hæfileikaríkum leikmönnum. „Við í Haukum vorum með öflugt lið í yngri flokkunum, svo var maður alltaf að spila 2-3 ár upp fyrir sig. Ég var mjög metnaðarfull sem unglingur og við Helena Sverris fórum alltaf beint upp í íþróttahús eftir skóla og vorum þar fram á kvöld. Við horfðum mikið á æfingar og leiki hjá strákunum og fylgdumst með öllu sem um var að vera. Allur tíminn fór í þetta, manni langaði t.d. oftast bara meira að fara á æfingar eða í körfubolta heldur en að fara í afmæli hjá vinum sínum.“
Hvernig kanntu annars við þig hjá Keflavík? „Ég er eiginlega orðin Keflvíkingur og get vel hugsað mér að flytja hingað á endanum en vil helst klára námið mitt fyrst,“ en Pálína ver miklum tíma í Reykjanesbæ þar sem hún er í sambandi með Magnúsi Gunnarssyni fyrirliða karlaliðs Keflavíkur í körfunni. Hún segir stundum vera erfitt að keyra á milli, þá sérstaklega á veturna þegar veðrið er sem verst en þó venjist það.
Skamma Magga fyrir leti í vörninni
Missir þú þig nokkuð í stúkunni að horfa á Magga og strákaliðið? „Já það kemur fyrir en það er bara skemmtilegt. Ég skamma hann ef ég sé að hann er latur í vörninni og hann segir mér hvert ég á að hlaupa í sókninni. Við hjálpum hvort öðru mikið, hrósum og segjum hvað betur mætti fara eftir leikina, en við reynum að mæta á alla leiki hjá hvort öðru. Það er rosalega gott að hafa Magga í stúkunni því hann talar svo mikið við mig meðan leikurinn er í gangi og hjálpar mér. Við veitum hvort öðru mikinn stuðning enda erum við bæði í sömu stöðu og það er ótrúlega gaman að fylgjast með hvort öðru. Ég held að við höfum mjög góð áhrif á hvort annað því við erum bæði að eiga okkar besta tímabil til þessa.“
Mömmu- og pabbastelpa sem þorði ekki út
„Ég fór í viðskiptafræði því mér finnst það skemmtilegt. Mér finnst gaman að reikna og svo er þetta hagnýtt nám og getur nýst manni alls staðar,“ og stefnan hjá Pálínu er að klára BA námið á Íslandi og fara jafnvel í mastersnám í Danmörku en hana langar að prófa að búa þar. „Ég er samt ekkert búin að setja mér einhver framtíðaráform. Það var alltaf á dagskránni að fara erlendis en ég er svo mikil mömmu- og pabbastelpa og þorði eiginlega ekki að fara, en það kom til tals að fara til Bandaríkjanna þegar Helena Sverris fór þangað á sínum tíma. Ég sé þó ekkert eftir því í dag,“ en Pálínu langar jafnvel að prófa að búa erlendis á næstu árum.
Verður seint kjörin prúðasti leikmaðurinn
Pálína var fyrir skömmu kjörin íþróttamaður Reykjanesbæjar og Keflavíkur en hún hefur nánast unnið allt sem er í boði í hennar íþrótt. Hvað er þá eftir? „Núna þegar ég var íþróttamaður Keflavíkur og Reykjanesbæjar þá er voða lítið eftir að vinna í verðlaunum talið. Einu verðlaunin sem ég á eftir að vinna er prúðasti leikmaðurinn á KKÍ lokahófinu en ég sé ekki fram á að það gerist,“ segir Pálína og hlær en hún er jafnan þekkt fyrir að vera hávær og fyrirferðamikil á velli, auk þess sem betri varnarmaður fyrirfinnst vart á Íslandi. „En það er fyrst og fremst skemmtilegt að vera í körfuboltanum og félagsskapurinn er góður,“ segir Pálína og það hvetur hana áfram til dáða.
Pálína hefur alltaf verið mikill varnarjaxl og lagði mikið upp úr varnarleik. „Sérstaklega þegar ég var yngri og var að spila með Helenu sem gat alltaf skorað og sá að mestu leyti um það. Þá kom ég inn á til að dekka besta manninn þeirra og ég geri það svo sem enn þann dag í dag. En núna er líka ætlast til þess að ég skori og geri fleira heldur en að spila vörn. Jonni (Jón Halldór Eðvaldsson) hjálpaði mér mikið að bæta sóknarleikinn og hann bætti sjálfstraustið mitt líka mikið. Ég hef bætt mig mikið sóknarlega síðan ég kom til Keflavíkur og á hann stóran þátt í því,“ en í ár hefur Pálína skorað rúm 17 stig að meðaltali og er þar efst meðal íslenskra leikmanna. Hún hefur skorað næstflestar þriggja stiga körfur allra leikmanna í deildinni og er hún 8. í deildinni í fjölda stoðsendinga og er aðeins einn íslenskur leikmaður ofar þar á lista. Þegar kemur að framlagi þá er Pálína í 15. sæti og aðeins Sigrún Sjöfn Ámundadóttir úr KR er ofar meðal Íslendinga. Pálína er sammála blaðamanni um að hún sé líklega að eiga eitt sitt besta tímabil, og þá sérstaklega sóknarlega séð.
Ungu stelpurnar eru skrefinu á undan mér
Upplifirðu þig sem reynslubolta innan liðsins? „Nei nei, mér finnst ég ennþá svo ung þó ég sé næstelst í liðinu í dag,“ en miklar breytingar hafa átt sér stað í leikmannahópi Keflavíkur frá því í fyrra og Pálína, sem er aðeins 25 ára, meðal þeirra elstu í liðinu. „Ég segi ungu stelpunum til og öskra svolítið á þær en það er bara af því að mér finnst þær svo góðar. Mér finnst eins og þær séu 20 ára en þær eru bara 15 og 16 ára og eru skrefinu á undan mér þegar ég var á þeirra aldri. Þær eru rosalega góðar, ég held að Keflavík í kvennakörfunni eigi eftir að vera í fremstu röð í mörg ár í viðbót og það verður alltaf erfitt að velja í 12 manna lið, eins og raunin er í dag.“
Keflvíkingar náðu einstökum árangri í fyrra þegar allir flokkar í kvennaboltanum unnu Íslandsmeistaratitil og meistaraflokkurinn landaði öllum titlum sem í boði voru nema deildarbikarnum en hann unnu Keflvíkingar einmitt á dögunum.
„Við áttum gott tímabil í fyrra, við unnum allt nema deildarbikarinn. Við vorum með frábæran útlending og vorum það heppnar að þegar hún meiddist þá fengum við aðra stelpu sem var í sama klassa í staðinn. Svo unnu yngri flokkarnir líka allt sitt og það verður langt þangað til þetta verður endurtekið,“ segir Pálína.
Vil banna erlenda leikmenn
Hún er ekki hrifin af því að safna útlendingum í liðin. „Það á að banna útlendinga í kvennadeildinni að mínu mati. Ef þú ert með frábæran Kana, þá eru meiri líkur en minni á að þú vinnir og of mikið veltur á því hvort þú hafir góða útlendinga. Þar af leiðandi heltast ungar stelpur úr lestinni því þær fá ekki að spila. Ég myndi frekar vilja sjá að íslenskir leikmenn fengju borgað í staðinn fyrir útlendinga,“ segir Pálína og eflaust eru margir sammála henni í þeim efnum en þessi mál hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu.
Finnur þú fyrir ríg milli liðanna á Suðurnesjum og þá sér í lagi í Reykjanesbæ? „Mér finnst skrýtið að ef Grindavík og Njarðvík eru t.d. að keppa þá halda Keflvíkingar alltaf með Grindavík en ekki Njarðvík. En ég held að þetta risti ekkert djúpt hjá flestum held ég, þetta myndar bara skemmtilega stemningu í bænum.“
Vill alltaf vinna
Eins og áður segir þá er Pálína þekkt fyrir varnarleik sinn og að láta vel í sér heyra inni á vellinum, en getur hún tekið undir það að hún sé pirrandi andstæðingur? „Já ég er pirrandi andstæðingur og mikil keppnismanneskja í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég fer algerlega í ham í leikjum,“ segir Pálína og þetta hefur líka áhrif á hana í einkalífinu. „Það lá við sambandsslitum hjá mér og Magga um síðustu jól þegar borðspilin voru tekin fram,“ segir hún og hlær. „Maður vill alltaf vinna,“ segir keppnismanneskjan Pálína að lokum.