HSS
HSS

Íþróttir

Verður Ólafur áfram hjá Brann?
Miðvikudagur 25. júlí 2007 kl. 11:30

Verður Ólafur áfram hjá Brann?

Vel getur verið að knattspyrnumaðurinn Ólafur Örn Bjarnason frá Grindavík verði áfram í herbúðum norska úrvalsdeildarliðsins Brann. Ólafur tjáði forsvarsmönnum Brann það í síðasta mánuði að hann vildi yfirgefa herbúðir félagsins.

 

Ólafur sagði í samtali við vefmiðilinn fotbolti.net að eins og staðan væri í dag vildi hann fara frá félaginu en að hann myndi ekki loka neinum dyrum því hlutirnir gætu breyst mjög hratt. „Ég hef látið þá skoðun mína í ljós að ég vilji komast burt en fái ég samningstilboð er ég tilbúinn að skoða málið,“ sagði Ólafur við fotbolti.net.

 

Ólafur sagði ennfremur að hann hefði ekki áhuga á því að fara á reynslu til annarra félaga, frekar færi hann heim til Íslands.

 

Frétt unnin upp af www.fotbolti.net

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn