Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Fimmtudagur 10. apríl 2003 kl. 08:52

Verða Keflvíkingar Íslandsmeistarar í kvöld?

Keflvíkingar eru komnir í vænlega stöðu í einvíginu gegn Grindavík í úrslitum Intersport-deildarinnar í körfuknattleik, leiða 2-0 og þurfa því einungis einn sigur til viðbótar til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Það getur gerst í kvöld en liðin mætast í þriðja sinn í Röstinni í Grindavík kl. 19:15. Keflavík sigraði Grindavík sl. mánudag, 113:102, en heimamenn leiddu allan leikinn. Damon Johnson og Edmund Saunders fóru hamförum í liði Keflavíkur, Damon skoraði 39 stig og Edmund 35. Í liði gestanna var Darrell Lewis frábær en hann setti niður 42 stig.Leikurinn byrjaði mjög fjörlega og skiptust liðin á körfum. Það tók Keflavík þó ekki langan tíma að ná yfirhöndinni og voru þeir með 12 stiga forskot í hálfleik, 60:48. Í síðari hálfleik byrjuðu liðin af krafti en svo virtist sem heimamenn væru bara of sterkir fyrir Grindvíkinga og juku þeir forskot sitt jafnt og þétt og náðu mest 20 stiga forskoti. Gestirnir náðu eitthvað að klóra í bakkann í lokin en það var bara of seint og annar sigur Keflavíkur raunin.

Næsti leikur fer fram í kvöld kl. 19:15 í Röstinni í Grindavík.

„Ætlum að vinna þetta 3-0"
Jón N. Hafsteinsson hefur verið að leika vel fyrir Keflavík í úrslitakeppninni, ekta ruslakarl sem gefur alltaf 100% í leikinn. Hann hefur mátt þola það að verða nokkuð fyrir barðinu á dómurum deildarinnar og má í raun segja að hann sé fyrsti maðurinn sem leitað er af ef dæmdar eru villur. Hann sagði í samtali við VF-sport að hann væri ánægður með stöðu mála í einvíginu gegn Grindvík. „Við erum komnir í fína stöðu núna en við verðum þó að vinna einn leik í viðbót. Ástæðan fyrir því að við höfum náð yfirhöndinni í einvíginu er sú að við erum með meiri vilja og baráttu en þeir ásamt því að við keyrum á fleiri leikmönnum".
Aðspurður hvort Keflvíkingar væru með miklu sterkara lið vildi hann ekki taka svo sterkt til orða en sagðist þó telja Keflavíkurliðið sterkara en það grindvíska þetta árið.
Hann sagðist ekki hissa á því hve vel Damon og Edmund væru að spila fyrir Keflavík.
„Það er ekkert hægt að stoppa þá, þeir munu alltaf skora sín stig. Bara eins og Darrell Lewis hjá þeim, hann er illviðráðanlegur og kemur til með að skora sín 30 - 40 stig".
Jón sagðist alveg eins búast við því að þeir myndu vinna einvígið 3-0. „Við erum búnir að vera spila vel í undanförnum 5-6 leikjum og virðumst vaxa með hverjum leik. Ég sé því ekkert því til fyrirstöðu að við vinnum þetta ekki 3-0 og það ætlum við okkur að gera núna fyrst við eigum möguleika á því".

„Ef einhverjir geta snúið þessu við erum það við"
Helgi Jónas Guðfinnsson, leikmaður Grindavíkur hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit gegn Keflavík og var að vonum ósáttur þegar Víkurfréttir ræddu við hann. Hann var sammála því að nú væri á brattann að sækja þar sem Keflavík væri komið í góða stöðu. „Já, búið að vera mjög erfitt en það er ekki öll nótt út en. Keflavík er með gríðarlega sterkt lið og það fara þeir Damon og Edmund fremstir í flokki en Ed er að spila rosalega vel um þessar mundir. Við verðum að halda þeim niðri í þriðja leiknum en við megum ekki gleyma okkur því að það er mikið um góðar skyttur í liðinu og það þýðir ekki bara að hugsa um þessa tvo því þeir gera alltaf 20 - 30 stig í leik", sagði Helgi. Hann sagði að ætli Grindavíkurliðið sér sigur í leiknum í kvöld verði þeir að bæta varnarleikinn. Helgi sagði að það yrði erfitt að sigra þrjá leiki í röð gegn Keflavík og þar væri sagan ekki hliðholl þeim þar sem engu liði hefur tekist að koma til baka og sigra eftir að hafa lent 2-0 undir. „Þetta verður mjög erfitt en ef einhverjir geta það þá erum það við".

Eins og áður sagði verður þriðji leikur liðanna í úrslitum háður í Grindavík í kvöld kl. 19:15 og eru Suðurnesjamenn hvattir til að láta þennan frábæra íþróttaviðburð ekki framhjá sér fara. Mætum á völlinn!
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024