Vel heppnað Samkaupsmót

Mótið fór fram í íþróttahúsunum við Sunnubraut og í Njarðvík og er það löngu orðið eitt af glæsilegustu barna- og unglingamóti landsins. Liðin sem kepptu voru 101 og með þjálfurum og öðrum aðstoðarmönnum má því gera ráð fyrir að gestafjöldi hafi verið á annað þúsund. Leikir voru alls 250 en hvert lið lék 5 leiki. Einnig var boðið upp á skemmtun s.s. bíó- og sundferðir og kvöldvöku.
Unglingaráð Keflavíkur og Njarðvíkur sáu um skipulagningu mótsins en ljóst er að gera verður sérstakar ráðstafanir að ári vegna fjölda svo hægt sé að bæta við fleiri liðum og keppendum.