Vel heppnað lokahóf Þróttara
Þróttur Vogum héldu lokahóf sitt um helgina fyrir fullu húsi. Lokahófið var með glæsilegasta móti. Njarðvíkingurinn Örvar Þór Kristjánsson fór á kostum sem veislustjóri. Freyr Brynjarsson gerði sjónvarpsþátt í tengslum við lokahófið og fékk sjónvarpsmanninn Sölva Tryggvason til liðs við sig. Eiður Eyjólfsson frumflutti Þróttaralagið og stjórnaði fjöldasöng. Þorsteinn Gunnarsson fékk frábærar viðtökur við ræðu sinni þar sem hann fór yfir sitt fyrsta ár með félaginu.
Eftirfarandi voru verðlaunuð á lokahófinu:
Besti leikmaður: Andrew Wissler
Efnilegasti: Hákon Harðarson
Besti félagi: Bjarni Steinar Sveinbjörnsson
Fallegasta markið: Hjólhestaspyrna Magnús Ólafsson
Markakóngur 2013: Reynir Þór Valsson
Stuðningsmaður ársins: Júlía Gunnarsdóttir
Karakter ársins: Brekkan
Viðurkenning fyrir 50 leiki með meistaraflokki Þróttar: Einar Helgi Helgason og Þorfinnur Gunnlaugsson.
Einnig var tilkynnt það að leikmaður ársins Andrew Wissler verður tilnefndur til íþróttamanns ársins 2013 í Sveitarfélaginu Vogum. Hér að neðan má sjá myndband sem sýnt var á lokahófinu.