Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Veglegar gjafir í leikslok
Laugardagur 5. apríl 2008 kl. 10:36

Veglegar gjafir í leikslok

Íslandsmeistarar Keflavík í Iceland Express-deild kvenna fengu vegleg verðlaun í gærkvöldi fyrir sigur sinn. Iceland Express aðalstyrktaraðili KKÍ veitti félaginu 700.000 króna úttekt sem mun án efa nýtast vel við æfinga- og keppnisferðalög.
 
Einnig fékk félagið 500.000 króna peningagjöf frá bæjarráði Reykjanesbæjar.
 
Birgir Bragson formaður Kkd. Keflavíkur tók við þessum veglegu gjöfum sem kórónar frábært tímabil hjá Keflavíkurstúlkum.
 
VF-mynd: Stefán Þór Borgþórsson / [email protected] - Birgir Bragason með stóru ávísunina frá Iceland Express.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024