Veðurofsi stöðvar Landsmót
Landsmót Unglinga sem nú fer fram á Hólmsvelli í Leiru hefur verið frestað en mótsstjórn vonast til þess að veðrið lagist þegar líður á daginn. Ákveðið var í morgun að fella niður umferð í yngsta aldursflokknum. Gylfi Kristinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Suðurnesja, sagði í samtali við Víkurfréttir að þeir yngstu réðu ekki við þetta veður.