Védís Hervör syngur þjóðsöngvana

Þjóðsöng Íslands, lofsöng Matthíasar Jochumssonar, kunna allir og hefur þessi ættjarðarsöngur yljað mörgum um hjartaræturnar fyrir landsleiki á Laugardalsvellinum. Færri þekkja hins vegar þjóðsöng Wales, sem heitir á frummálinu "Mae Hen Wlad Fy Nhadau" og útleggst á ensku "Land of my fathers." Védís mun syngja þjóðsönginn á welsku.
Í hálfleik mun síðan Gunnar Ólafsson, sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Skítamóral, leika nokkur lög til að halda uppi fjörinu.