Varamaðurinn bjargaði Keflavík
Keflvíkingar mættu í kvöld Haukum á Njarðtaksvellinum í 7. umferð Pepsi-deildar karla. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Nú eru Keflvíkingar í 4. sæti deildarinnar með 14 stig, jafn mörg stig og topplið Fram en með lakari markatölu. Aðeins 366 manns mættu á leikinn enda var rok og rigning á Njarðtaksvellinum og aðstæður til fótboltaiðkunar ekki góðar.
Leikurinn fór heldur rólega af stað. Keflvíkingar spiluðu boltanum meira á milli sín á meðan Haukar stóluðu á skyndisóknir. Fyrsta alvöru færi leiksins kom á 13. mínútu þegar Guðmundur Steinarsson, leikmaður Keflavíkur, átti skot á mark Hauka en Daði varði vel í markinu. Á 22. mínútu voru Keflvíkingar nálægt því að skora þegar Hólmar Örn Rúnarsson átti glæsilegt skot á markið en Daði Lárusson varði aftur vel. Nokkrar sóknir litu dagsins ljós í fyrri hálfleik en yfirleitt fuku þær útí sandinn enda áttu liðin erfitt með að hafa stjórn á boltanum í rokinu. Staðan í hálfleik markalaus.
Haukar komu sterkir inn í seinni hálfleik og áttu góða rispu á fyrstu mínútunum. Þeir áttu nokkrar misheppnaðar sóknir en á 51. mínútu tókst þeim að koma boltanum í netið. Það gerði Sam Mantom eftir góða sókn þar sem Haukar spiluðu sig í gegnum vörn Keflvíkinga. Staðan því orðin 0-1. Fyrstu mínúturnar eftir markið voru Haukar sterkari og tókst þeim að skapa sér nokkur færi. Þegar leið á hálfleikinn færðist aukinn kraftur í leik Keflvíkinga. Þeir spiluðu boltanum vel á milli sín en þeim gekk þó illa að skapa sér hættuleg færi. Á 61. mínútu voru þeir þó óheppnir að skora ekki þegar Andri Steinn Birgisson átti þrumuskot í þverslánna eftir góða sókn þeirra bláu. Næstu tuttugu mínúturnar skiptust liðin á að sækja en ekkert gekk. Á 78. mínútu áttu Keflvíkingar hættulegt færi þegar Magnús S. Þorsteinsson átti gott skott á mark Hauka en aftur reyndist Daði þeim bláu erfiður á milli stanganna. Síðustu tíu mínútur leiksins ríkti algjör einstefna á vellinum í átt að marki Hauka og nokkuð ljóst að Keflvíkingar vildu ekki sætta sig við tap. Eftir nokkrar misheppnaðar sóknir og hornspyrnur kom jöfnunarmarkið. Brynjar Örn Guðmundsson, sem kom inná aðeins níu mínútum fyrr, átti þá þrumuskot af vinstri kanti inn í vítateigin, boltinn lenti á Daða í markinu sem missti hann á klaufalegan hátt í markið. Það tók liðin þó nokkra stund að átta sig á því að boltinn lægi í netinu enda virtist í fyrstu að Daði hafi varið boltann framhjá. En inni lá hann og lokatölur því 1-1 í rokinu í Njarðvík.
Víkurfréttamyndir / Hilmar Bragi Bárðarson - Brynjar Örn Guðmundsson skorar jöfnunarmarkið á 86. mínútu.