„Var aðallega að reyna að lenda ekki á varnarmanninum“
-Markmið liðsins er að enda í topp 4
Katla Rún Garðarsdóttir leikmaður Keflavíkur í Dominos deild kvenna setti niður skot af dýrari gerðinni í leik gegn Haukum í þriðju umferð deildarkeppninnar. Leiktími fyrsta leikhluta var alveg að renna út þegar Katla, stödd við miðlínu vallarins, skýtur á körfuna og hittir beint ofan í, „ekkert nema net,“ um leið og flautan gall.
„Ég var ekki beint að búast við að hitta úr þessu. Ég var aðallega að reyna að lenda ekki á varnarmanninum sem var á leiðinni í áttina að mér,“ segir Katla Rún. „Þegar ég sá að boltinn fór ofan í þá brá mér smá því ég sá ekki hvernig skotið leit út eða hvort ég hefði hitt á hringinn. En síðan var ég bara nokkið fegin að hafa hitt úr þessu því ég hef tekið nokkur svona skot en aldrei hitt úr þeim.“ segir Katla.
Meistaraflokkslið Keflavíkur kvenna í ár er eitt það yngsta í sögu félagsins en meðalaldur liðsins ef frá er talinn erlendi leikmaðurinn er 18 ár. Stelpurnar hafa margar spilað saman í yngri flokkum og verið gríðarlega sigursælar þar. En þrátt fyrir ungan hóp hafa þær byrjað tímabilið nokkuð vel, unnið tvo leiki og tapað einum.
Hvernig leggst tímabilið í Kötlu?
„Tímabilið leggst bara mjög vel í mig, held að þetta verði skemmtilegt og lærdómsríkt tímabil. Liðsandinn er mjög góður, við erum allar góðar vinkonur og höfum flestar spilað saman upp alla yngri flokkana. Stemningin er einnig mjög góð, við erum allar spenntar fyrir tímabilinu og viljum allar standa okkur sem best.“
Hvaða markmið hefur liðið sett sér fyrir veturinn og hvaða væntingar hafið þið?
„Við setjum okkur það markmið að komast í topp 4. Við teljum okkur geta það þrátt fyrir ungan aldur. Við förum í alla leiki með það markmið að ná í 2 stig og ef við spilum vel saman þá getum við gert það,“ segir Katla Rún að lokum.